`

border



25.07.2008 >> Mega-Post

Ferðin til Nikko

Ferð til Nikko #1

Í seinustu viku fór ég í ferð með öllum útlendu nemunum í skólanum til Nikko sem er eins konar Hveragerði Japans. Nóg af jarðhita og heit böð og hótel út um allt. Þetta er ferð sem er farin einu sinni af ári og er niðurgreidd af skólanum og ríkinu. 2 dagar/1 nótt á 3000 jen. Ekki slæmt.

Túrgædinn

Við lögðum af stað snemma á þriðjudagsmorgni og fengum fínan túrgæd sem notaði fínustu og virðulegustu japönsku sem ég hef heyrt. Þéraði okkur í öll í klessu og notaði alls kyns formlegheit á japönsku sem maður heyrir mjög sjaldan.

Gyoza-mura

Stoppuðum í hádegismat í Gyoza-mura sem er frægt fyrir gyoza en það eru eins konar "dumplings" sem eru kínverskir að uppruna...

Gyoza

...og líta svona út.

Edomura

Næsta stopp var Edo Wonderland en það er skemmtigarður sem er byggður upp eins og þorp frá Edo tímabilinu (1603-1868) og þar af leiðandi klæðist allt staffið fötum frá þeim tíma. Þarna var eitthvað leikrit að byrja sem ég náði ekki almennilega að fylgjast með...

Edomura slagur

...en það endaði í slagsmálum. Sem að gellan í græna vann á mjög auðveldan hátt að er virtist.

Hof Tokugawa

Næst skoðuðum við Nikkō Tōshō-gū hofið. Þar er sagt að Shogun-inn Tokugawa Ieyasu sé grafinn en samkvæmt fararstjóranum okkar er það ekkert víst því að hann lét gera margar grafir fyrir sig út um allt Japan. Ástæðan var víst sú að hann vildi ekki að einhver stæli beinunum sínum og gerði eitthvað ljótt við þau.

Three Wise Monkeys

Eitt af því meira töff við þetta hof var að sjá "upprunalegu" Three Wise Monkeys, það er, þessir þrír apar sem að heyra ekkert illt, segja ekkert illt og sjá ekkert illt. Frekar töff.

Landslag #1

Landslagið var mjög flott á leiðinni og það var gott að fá aðeins hvíld á steinsteypu-geðveikinni sem Tokyo er.

Landslag #2

Við vorum um 8 tíma á leiðinni með öllum stoppum en þegar komið var á hótelið var slappað af í klukkutíma fyrir matinn. Fínasta onsen var á hótelinu sem ég kíkti alls þrisvar í og maturinn var einnig mjög góður. Eftir matinn var svo drukkið aðeins fram á nótt en ég var svo uppgefinn að ég lagðist uppí um miðnætti.

Endir

Vaknaði ótrúlega ferskur eftir bara sex tíma svefn og dagskráin hélt áfram. Kíktum í tvö söfn á leiðinni heim og lentum í Tokyo rétt fyrir kvöldmat.

---------------------------------


Brúðkaupið

Brúðkaupssvæðið #1

Síðastliðinn sunnudag kíkti ég með Saho, Aiko og Ryano í brúðkaup vins hennar Saho. Vinur hennar var brúðguminn, gamall félagi hennar úr háskóla.

Brúðkaupssvæðið #2

Svæðið sem brúðkaupið var haldið á var alveg tryllt. Lítill dalur með litla svefnkofa við árbakkann og samkomusvæði fyrir sirka hundrað manns. Athöfnin sjálf var haldin á samkomusvæðinu sem var rétt aftan við bláa tjaldið á myndinni.


Við mættum snemma á svæðið því að Saho og Aiko þurftu að setja upp græjurnar sínar því þær voru nefnilega með litlan konsert um kvöldið sem hljómsveitin Dagua. Litlar polaroid myndir voru teknar af öllum gestunum og hengt upp á töflu sem hér sést en ég er þarna í frönsku fánalitunum efst til vinstri.

Athöfnin

Athöfnin sjálf byrjaði um eftirmiðdaginn þegar pabbi brúðarinnar skutlaði dótturinni í hendur brúðgumans.

Samningurinn

Næsta skref var að lesa hjúskaparheitin og skrifa undir giftingarsamninginn.

Sake-tunnan brotin

Þar á eftir var risastór tunna af sake borin fram og brúðhjónin brutu lokið af henni í sameiningu.

Sake

Eftir það fóru allir og fengu sér sake úr tunnunni.

Tertan skorin

Næst var "photo-op" þegar að brúðhjónin skáru brúðkaupstertuna..

Mocha búið til

..og þar á eftir skiptust brúðhjónin á að lemja sjóðandi heit hrísgrjón með sleggju til að búa til mochi sem er mjög hefðbundið japanskt sælgæti.

Gengið

Eftir athöfnina hófst borðhaldið og allir slöppuðu af og byrjuðu að sötra á þessu gífurlega magni af alls kyns áfengi sem var á boðstólum. Þarna er samankomið mikið af Nerima genginu en á þessum tímapunkti voru allir með sett upp þessi gleraugu sem að gera það að verkum að þegar maður rýnir í ljós/eld að þá sjást hjörtu allt í kring.

Blautt

Fólk fór að busla þegar leið á veisluna og nokkrum heppnum var fleygt í ánna með tilkomandi látum.

Dagua

Hljómsveitin Dagua steig svo á stokk og flutti rétt undir hálftíma af splúnkunýju efni. Setti upp litla klippu af þeim frá spilerí þeirra seinna um kvöldið en klippuna má finna hér.

Varðeldurinn

Kveiktur var varðeldur og drykkjan hélt áfram. Prófessjonal barþjónn var fenginn til en hann blandaði alls kyns kokkteila í mannskapinn samhliða kampavíninu og hinu sullinu. Ég hélt mig við bjórinn sem betur fer.

Ég að spila

Ég tók það að mér að DJa um kvöldið og spilaði í sirka einn og hálfan tíma. Mikið af gestunum hafði farið heim með seinustu lest en þó nokkrir urðu eftir og stemmningin var með eindæmum góð.

Flugeldar

Allir fengu flugelda á einhverju stigi málsins og kveikt var í innibombum sem skutu upp skrauti yfir svæðið.

Á góðri stund

Kallinn!

Meiri varðeldur

Kvöldið varð skemmmtilegra og skemmtilegra og undir lokin hópuðust allir við varðeldinn og það var matreitt yakisoba og þvílíkt magn af kjöti í lýðinn sem var eftir. Eitthvað um 2-3 fór maður svo í bælið en það gistu allir í litlum skálum sem voru á víð og dreif í kringum ánna.

Búið

Fin.





8 comments have been posted
[ Add Comment ]

gummi at 13:09 25.07.2008
Mega næs... ég verð að eignast svona ástarhjartagleraugu...

Steinn Linnet at 18:47 25.07.2008
Þú ert svo blellað Tour de France-aður í þessu brúðkaupi.

björn kóngur at 19:26 25.07.2008
Sammála gumma. Ég verð að eignast svona hjartagleraugu.

árni magnús at 19:27 25.07.2008
...og ég verð líka að eignast svona gleraugu

Andri Már at 15:30 26.07.2008
Uffff hvað þetta lítur allt vel út þarna,mega öfund í gangi yfir þessu blell tryllta stað sem að brúðkaupið var ...lookin awsome Erntron !

A True American Hero at 20:28 27.07.2008
Über!

Arnaldur at 12:59 30.07.2008
Er Gyosa-mura borg? Gyosa borg? Er til eitthvað fallegrs í heiminum? ÉG krefst þess að þú gyosir mig, ASAP.

Árni at 11:44 31.07.2008
Goyza-þorp frekar. Mura getur þýtt bær eða þorp. En þetta var bara truck-stop veitingastaður eiginlega. Með ógeðslega mikið af gyoza. Skal reyna að FedEx-a smá gyoza á þig og goyza þig upp.

Add Comment

The password to post a comment is blell.

Name:

Website:

(optional)

Password:

Comment:


__ELDRI FÆRSLUR__

drippy

____LINKAR___

__ég__

___Músík MySpace

___TZMP MySpace
___Flickr
___Ég elska Tokyo
___Gamla Japansbloggið

__vinirnir__

___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Nerinese
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Kalli
___Miyuki
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn

__músík__

___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___Loronix
___Fan 2 Funk
___The Trance
___Bentleyfunk2
___Cool Spirito
___Playin 4 Keeps
___Dollar Bin Jams
___Beat Electric
___B-Town Hit Parade
___DJ Anonymous
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category

__ýmislegt__

___Video Sift
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___UCB Comedy
___Hollywood Phony
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__