ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

03.07.2008 >> Fjör

Fór að sjá Soil & PIMP Sessions í seinustu viku en þeir voru að spila í Shibuya AX sem er ansi stór tónleikastaður í miðbæ Tokyo. Tónleikarnir voru mjög góðir, gömlu slagararnir voru á sínum stað en þeir spiluðu einnig mikið af nýju plötunni sem var gaman að heyra "live" í fyrsta sinn. Náði rétt svo að taka örfáar myndir því gæslan var alveg ótrúlega ströng. Tveim mínútum eftir að ég hafði tekið örfáar myndir kom útsendari staðarins að leita mig uppi. Þegar hann kom upp að mér sá hann að ég var útlendingur og gerði því bara með handabendingum "myndavél" og "bannað". Fjúff.

Eins og ég hef minnst á áður er eitt af verkefnunum í skólanum að vera með útvarp fyrir börn innflytjenda. Annar liður þessa verkefnis er að kíkja í heimsókn í skólana og vera með vinnusmiðjur þar sem við tökum upp stuttar myndir/kynningar á vídjó með börnunum. Nú þegar erum við búin að fara í tvo skóla, annars vegar fyrir börn brasilískra innflytjenda og hins vegar fyrir börn norður-kóreskra innflytjenda. Báðar ferðirnar gengu mjög vel en ég er búinn að skella upp tveimur myndagalleríum með myndum frá ferðunum en þau sjást hér og hér.

Fór til Sendai yfir helgina með kennaranum og samnemendum á symposium-ið/ráðstefnuna Cultural Typhoon. Þar hittust alls kyns fólk úr fræðigeiranum og listamenn til að taka þátt í vinnusmiðjum og málstofum ýmis konar. Við nemendurnir frá skólanum okkar vorum með "media art" listaverk til sýnis og héldum kynningar á rannsóknarverkefnunum okkar. Kynningin mín gekk ágætlega og ég fékk haug af spurningum sem ég blessunarlega gat svarað. Athyglisverðasta sem ég sá var pallborðsumræðurnar með anarkistanum Andrej Grubacic og svo ótrúlega súr málstofa þar sem að fjórir póst-módernistar kepptust í að vera sem mest póst-módernískastir. Hátindi þeirrar umræðu var svo náð þegar að talið fór að berast í "engla" og hvernig við værum öll englar. Frábært.

Í Sendai hitti ég á snillinginn hann Sato en honum kynntist ég fyrir löngu síðan þegar hann heimsótti Ísland. Hann var einn af mínum fyrstu japönsku vinum og er hiklaust einn af fyndnari Japönum sem ég þekki. Þegar við vorum að rölta um bæinn rákumst við á þetta skilti sem sést á myndinni en það er fyrir hip-hop fatabúðina Sperm. Við fórum inn og þetta var bara ósköp eðlileg búð með enga brund-referensa nema bara í nafni búðarinnar. Veit ekki alveg hvort ég varð fyrir vonbrigðum eða ekki.

Ég er búinn að ákveða þemað og velja myndir fyrir tilvonandi ljósmyndasýningu sem mig langar að halda. Fór í gegnum allar myndirnar mínar af Íslandi frá nóvember 2006 til mars 2008 og valdi út um 30 myndir. Planið er að hafa (á víxl) myndir af fólki á djamminu (já, þú ert kannski á einni af myndunum) og svo af umhverfinu í Reykjavík. Held að þetta geti komið mjög vel út. Næsta verk er að prenta út myndirnar og búa til möppu til að sýna kaffihúsa/gallerí eigendum. Stefnan er svo að hafa sýninguna í október/nóvember.

Sumarfríið er byrjað í skólanum og helst það út september. Ástæða fyrir svona löngu sumarfríi er víst sú að því þetta er listaháskóli er svo mikið af prófum sem taka upp mikinn tíma, s.s. próf á ýmis hljóðfæri. Ég verð hins vegar ekki alveg eirðarlaus því út júlí mun ég halda áfram að lesa og að taka þátt í útvarps-verkefninu. Framundan er svo nóg að gera, gæti farið að vinna smá við þýðingar og svo ætla ég að fara á fullt með músíkína/mixteip-framleiðslu núna á næstunni. Svo lítur út fyrir að ég verði að plötusnúðast í ekki einu heldur tveimur brúðkaupum í sumar (þremur ef ég get DJast gegnum ADSL í brúðkaupi Steins og Áróru).
Talandi um músík, tjekkið á nýju MP3 Vikunnar sem er cyber-ljúft soul lag með hljómsveitinni Side Effect sem er búið að vera í miklu uppáhaldi síðustu daga. Smellið á hnappinn í slánni hægra megin til að hlusta.
|
Add Comment
The password to post a comment is blell.