ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

21.06.2008 >> Sadako-lausnin

Rigningatímabilið er byrjað af alvöru og það er rakara en andskotinn akkúrat núna. Svo rakt að eftir að maður tekur sturtu langar maður í aðra 20 mínútum seinna. Maður verður strax rosalega sveittur eftir sturtu og skítugur og það er ekkert að gera í því. Svo verður erfiðara að sofna næturna og maður vaknar sveittur og fjörugur. Svo þarf maður að passa sig að fötin manns byrji ekki að mygla með því að kaupa anti-myglu dót og sjá til þess að fötin þorni að fullu eftir þvott. Það er hins vegar eitthvað dáldið sexí við þetta ástand, en ég kem ekki puttanum á það.

Gerði rímix fyrir Tesla Girls, aka Jóa Kjartans og Sigga Eggerts, en það er komið upp á mæspeisið þeirra. Stutta forsagan að þessu rímixi er sú að þegar þeir héldu sameiginlega upp á afmælið sitt um árið var afmælisgjöf mín til þeirra rímix. "Twist-ið" var það að ég bað þá um að velja blint tvær tónlistarstefnur (hafði útbúið litla miða alls kyns tónlistarstefnum) og úr því kom úr prógressiv rokk og diskó. Því reyndi ég að gera þetta rímix í stíl þessara tveggja tónlistarstefna. Tjekkiði á þessu hér.

Í þessari semi-sjálfsmynd sést einnig einn af kokkunum á Nakamoto Ramen sem er nýja uppáhaldið af veitingastöðum hér í borg. Það sem er á boðstólum er ótrúlega sterk-kryddað miso-ramen gert af einstakri list. Fann hann eftir ábendingu frá Saho en hann er í hóflegri fjarlægð frá Nerima en einnig með útibú í Ikebukuro og Shinjuku meðal annars. Hiklaust næsta færsla á Ég elska útlönd þegar ég nenni loks að uppfæra.

Vinnan er hafin að nýju boogie tónlistarmixi, en það mun bera hinn frumlega titil Boogie Mixx II. Hef fundið fullt af nýju skemmtilegu dóti hérna í þessum geira og lagalistinn er sirka 60% tilbúinn. Tek öll lögin upp í tölvuna, geri "edit" af þeim lögum sem þurfa, og svo mixa ég þetta saman með CDJ spilurum sem ég þarf að fá lánaða einhvers staðar. Smelli mixinu upp hér um leið og það er til.

Talandi um tónlist að þá vildi ég smella upp einu lagi sem MP3 Vikunnar en þetta lag er búið að vera í stöðugri spilun síðustu daga. Það er lagið Mountain Book með hljómsveitinni OOIOO sem er auka-verkefni trommarans Yoshimi P-We úr Boredoms. Frekar "sækadelik" en aðallega bara gott. Dánlód og áhlustun með að því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.
|
[ Add Comment ]
Arnaldur at 11:08 25.06.2008
Neeeeei! Þú meinar: Sudouku-lausnin...
Árni at 16:51 25.06.2008
Skrifaði þetta sem titil á bloggfærsluna svo ég myndi muna eftir þessu, ætlaði svo að smella þessu inn í bloggið en sleppti því svo á endanum. Here goes:
Í japönsku hryllingsmyndinni "The Ring" (sem var reyndar gerð bandarísk endurgerð af) er þessi karakter sem heitir Sadako. Hún er drauga-gellan sem var drepin og ásækir karaktera myndarinnar. Fræg sena myndarinnar er þegar hún skríður út úr sjónvarpi eins karakterins (sjá hér: uk.youtube.com/watch?v=cQm3BV6s0r8 - kringum 02:10).
Einhver af spjallborðinu 2channel, stærsta og vinsælasta spjallborði Japans, kom upp með lausnina á þessu vandamáli. Ef að þessi Sadako gella gerir sig reiðubúin til að koma út úr sjónvarpinu þínu til að drepa þig þá er bara ein lausn. Eiga tvö sjónvörp og þegar þú sérð hana birtast á skjánnum, kveikja á hinu sjónvarpinu og ýta því alveg upp að hinu svo að skjáirnir snúi að hvorum öðrum. Núna ef að Sadako litla ætlar að reyna kíkja inn í stofuna til þín að drepa þig fer hún bara á milli sjónvarpa og skaðar engan. Vandamálið leyst. Thank God for the Japanese. Að finna upp svona vandamál og leysa þau svo.
Arnaldur at 01:21 26.06.2008
Vá! Senda hana inn í Freddy Kruger mynd og horfa svo á þau "Duke it out". Eða David Lynch kvikmynd.
Spennó.
Ray Ray at 02:49 26.06.2008
En ef maður hefur verið að horfa á þetta í gegnum Sliver-setup. 9 skjáir eða eitthvað. 9 Sadako?
Annars man ég ekki betur en að allir hafi stirðnað upp samstundis og þeir sáu kvendið.
Hvað sem því líður þá vil ég að þú sendir mér símanúmer sem ég get náð í þig í, vinur minn, gegnum e-samband.
Mariasama at 13:46 26.06.2008
En ef að maður slekkur á sjónvarpinu með fjarstýringunni þegar hún er komin hálfa leiðina út, klippist hún þá í tvennt eða hvað?
Mariasama at 14:31 26.06.2008
æj já það var ekki hægt. man núna
Ray Ray at 02:28 27.06.2008
Ætli Sadako birtist í betri upplausn ef maður tékkar á vídjóinu í gegnum skjávarpa?
56" Sadako, out to get you.
Add Comment
The password to post a comment is blell.