ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

16.06.2008 >> TAICOCLUB '08

Hérna kemur skýrslan frá útihátíðinni TAICOCLUB '08 sem ég fór á þar-síðustu helgi. Við lögðum af stað úr Nerima snemma um morguninn en það var hann Ryano sem að tók að sér aksturinn. Það tók okkur um fimm tíma (með nokkrum stoppum) að komast á leiðarenda, tjaldsvæðið Kodama-no-mori í Nagano héraði. Við drösluðum farangrinum okkar gegnum aðalhliðið og að tjaldsvæðinu og fundum okkur stað til að skella draslinu upp.

Svona leit tjaldstæðið út en þetta er tekið við hliðina á öðru af tveimur aðalsviðum. Þetta þarna rétt fyrir ofan miðju er sundlaug en við hentum upp tjaldinu okkar þar við hliðina. Við komum ansi seint á svæðið (um 16:00) en flýttum okkur að setja upp tjaldið svo að við myndum ná öllu aksjoninu.

Fyrsta sveitin sem við sáum var Boredoms (eða V∞redoms) en þau voru að spila á sérstaklega útbúnu sviði sem var inná tjaldsvæðinu. Ég er ekkert súper-mikill noise-rokk aðdáandi en sjóvið þeirra var frábært og ótrúlega vel flutt. Ég segi vel flutt því að þau spila með 3 trommara og samspilið var alveg magnað að sjá.

Næst á dagskránni var Tha Blue Herb sem var að spila í byrjun kvöldsins. Var mikill aðdáandi þeirra hér áður fyrr en dró þá ályktun síðar meir að ef maður skilur ekki japönsku textana hans BOSS the MC að þá er takmarkað gaman að fylgjast með þeim. Spileríið hjá þeim var samt flott og BOSS hélt stemmningunni merkilega vel uppi þrátt fyrir að vera bara einn á sviðinu með DJ í bakgrunni.

Fórum upp brekkuna að hinu aðalsviðinu og þar voru stöllurnar í Afrirampo að spila. Hafði ekkert heyrt í þeim áður en þær voru alveg blellaðar og með stórskemmtilegt sjóv. Þær minntu mjög mikið á White Stripes en bara skemmtilegri. Báðar tvær eru greinilega hörku hljóðfæraleikarar og það var sérstaklega gaman að fylgjast með trommaranum. Tók stutt vídjó af þeim sem ég smellti á YouTube og má sjá hér.

Strax eftir Afrirampo var rei harakami að spila en hann var svo leiðinlegur að ég fór strax niður á hitt sviðið. Þar var Fumiya Tanaka að spila teknó og dansinn dunaði. Upp við sviðið sáum við svo þennan 9 ára strák að dansa eins og villtur væri og alinn upp af úlfum. Mamma hans var þarna með honum og þurfti að draga hann í burtu þegar var kominn tími fyrir hann að fara í bólið. Teknó-krútt!

Eftir trylltan dans var ég orðinn svo þreyttur að ég lagðist út af. Eina vonda við staðinn sem við settum upp tjaldið var það að það var bein lína í hátalarana frá aðalsviðinu og því erfitt að festa blund með dúndrandi teknó í eyrunum. Ég náði þó einhvern veginn að sofa til morguns og vaknaði í súrefnislausu og teknó-mettuðu tjaldi um átta-leytið.

Teknóið hætti um níu-leytið en dagskráin hélt áfram á hinu sviðinu þar sem var stöðug tónlist til hádegis. Kíkti á klósettið og svo á rölt um svæðið til að ná af mér þynnkunni. Kíkti á hitt sviðið sem leit svona út:

Þeir allra hörðustu voru enn vakandi komnir saman þarna til að dansa við jazzy house. Svo var haugur bara sofandi þarna í brekkunni að fá sólbruna lífs síns. Eftir röltið var ég búinn að ná mér aftur á strik svo ég sneri aftur til tjaldsvæðisins þar sem restin af hópnum var að taka saman dótið. Rétt upp úr hádegi lögðum við svo af stað með draslið í átt að bílnum og keyrðum svo heim á leið.

Fin.
|
[ Add Comment ]
Arnaldur at 14:22 16.06.2008
kureshi tekuno-pixie!!!
Arnaldur at 14:33 16.06.2008
精神疾患テクノピクシー
Steinn Linnet at 08:43 17.06.2008
Teknómettað tjald hljómar alveg klikkað!
Brellumeistarinn at 19:44 17.06.2008
Mega abbó með Boredoms og Afrirampo.
Add Comment
The password to post a comment is blell.