`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


05.06.2008 >> Beach Gangster

Ueno

Húsnæðismálin hérna í Japan eru ennþá í sama farvegi og þau hafa verið. Enn fremur lítur út fyrir að það verði lítil breyting á því út mánuðinn allavega. Er hér ennþá í frírri gistingu hjá vinafólki en er alltaf með augun opin og lít á íbúðamiðlanir reglulega. Það er eitt pleis hérna í Nerima sem mig langar dálítið að skoða en það er 30fm penthouse íbúð (eitt herbergi) með þakgarði í 5 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Draumur ef að þetta reynist vera eins gott og það hljómar. Þetta er vel í dýrari kantinum (75.000 krónur á mánuði) miðað við sambærilega stórar íbúðir í hverfinu en ég er alvarlega að spá í að kíkja og skoða. Gæti verið að maður næði að ná verðinu eitthvað niður, aldrei að vita.

What?

Hversu mikið langar manni að kíkja á viðburð með álíka titil og Cum Foundation? Ekkert voðalega mikið. Ég er ekkert voðalega búinn að koma mér inní pönkið hérna (sem ég geri ráð fyrir að þetta sé) en þetta er ekkert óalgengt, að böndin kalla sig einhverjum álíka nöfnum. Besta hljómsveitarnafnið þarna er klárlega The Dirty Hospital. Annars voru nokkur góð á safndisknum Do Thank Anal sem ég keypti um daginn, þar á meðal Microwave Oven Soup Rex og Blue Light Anal. Wawaweewa!

Asakusa

Hlakka alveg mussu-mikið til en stefnan er að fara á tónlistarhátíðina Taico Club '08 núna á laugardaginn. Þetta er dagslangur viðburður sem að er haldinn á tjaldsvæði lengst úti í sveit í Nagano-héraði, norðan Tokyo. Ekki ómerkara fólk en Boredoms, Luke Vibert, Tha Blue Herb, Ulrich Schnauss og Rei Harakami munu spila þarna frá kvöldi laugardagsins og fram á hádegi á sunnudeginum. Tek myndavélina með og skila af mér skýrslu eftir herlegheitin.


Kíkti til Kappabashi-dori í Asakusa en þar er einn af fáum stöðum þar sem hægt að er að kaupa súper-raunverulega útlítandi vaxmat (sjá keppni í gerð á svona vaxmat hér). Aðallega er þetta hugsað fyrir útstillingar fyrir veitingastaði en einnig er þetta mjög vinsælt meðal ferðamanna. Fólk fer þarna og kaupir sér vax sushibita eða eitthvað smotterí sem minjagrip. Verðið á þessum "mat" er oft alveg ótrúlega blellað en fullur matardiskur getur kostað allt upp í 20-30.000 kall. Mjög litla bita er hægt að fá fyrir um þúsundkall. Planið er að safna mér nóg af pening og láta útbúa handa mér vaxútgáfu af drykknum Brjálaður Náungi.

Ekoda

Skólinn er kominn á meira skrið og núna stendur til að fara á tvær ráðstefnur með kennaranum og hinum framhaldsnemunum. Það er ein hér í Tokyo aðeins síðar í mánuðinum um tækni og ungmenni sem virkar spennandi. Hin er í enda mánaðarins og er haldin í Sendai og kallast Cultural Typhoon. Við verðum fjögur þarna frá okkar skóla að halda kynningar á rannsóknarverkefnunum okkar. Sem betur fer þarf þetta ekkert að vera súper-akademískt og fræðilegt, mér sýnist ég geta komist upp með að spila smá dubstep og útskýra hvað er í gangi með senuna hér og víðar.

Hundadrykkir

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum en þetta er mynd af hundabjór, hundafreyðivíni, hundavíni og hundasaké. Þessar vörur voru allar á boðstólum í búðinni Tokyu Hands fyrr í dag en sú verslun er svona eins konar rúmfatalagers-verslun sem selur allt mögulegt. Útskýringin sem ég fann fyrir tilvist hundasaké af þessari síðu segir að þetta sé leið til að geta skálað við hundinn sinn. Hmmm?





6 comments have been posted
[ Add Comment ]

Andri Már at 15:45 05.06.2008
Alveg kominn tími á að úrvalið af hundadrykkjum færi að taka við sér !!!
Bið að heilsa Luke Vibert..

Steinn Linnet at 20:37 05.06.2008
Blellað fólk gerir lífið alltaf aðeins betra!

Arnaldur at 09:23 06.06.2008
þakíbúð með garði á þakinu!!!
Shit, þú getur verið eins og Ghost Dog!
Núna þarftu bara að verða ótrúlega efficient launmorðingi og bréfdúfu-einhverflingur.

Arnaldur at 10:03 06.06.2008
Btw. Geturðu ekki sett link á forsíðuna í headerinn hjá þér. Mér finnst pirrandi að þurfa að setja inn urlið upp á nýtt til að komast á forsíðuna.

Also, hvað er þetta javascript að gera á síðunni þinni? Ég fæ ekki alveg séð hvað það er að gera.

Also, þá viltu mögulega breyta copyright árinu hjá þér í 2008.

Arnaldur at 10:07 06.06.2008
Ok, djók. Ég sé hvað java-ið er að gera þarna.

Árni at 15:18 06.06.2008
Arnaldur> Your wish is my command. Búið og gert.

Steinn> Too true for school and life!

Add Comment

The password to post a comment is blell.

Name:

Website:

(optional)

Password:

Comment:

drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__