`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


21.06.2008 >> Sadako-lausnin

Nerima

Rigningatímabilið er byrjað af alvöru og það er rakara en andskotinn akkúrat núna. Svo rakt að eftir að maður tekur sturtu langar maður í aðra 20 mínútum seinna. Maður verður strax rosalega sveittur eftir sturtu og skítugur og það er ekkert að gera í því. Svo verður erfiðara að sofna næturna og maður vaknar sveittur og fjörugur. Svo þarf maður að passa sig að fötin manns byrji ekki að mygla með því að kaupa anti-myglu dót og sjá til þess að fötin þorni að fullu eftir þvott. Það er hins vegar eitthvað dáldið sexí við þetta ástand, en ég kem ekki puttanum á það.

Ueno St.

Gerði rímix fyrir Tesla Girls, aka Jóa Kjartans og Sigga Eggerts, en það er komið upp á mæspeisið þeirra. Stutta forsagan að þessu rímixi er sú að þegar þeir héldu sameiginlega upp á afmælið sitt um árið var afmælisgjöf mín til þeirra rímix. "Twist-ið" var það að ég bað þá um að velja blint tvær tónlistarstefnur (hafði útbúið litla miða alls kyns tónlistarstefnum) og úr því kom úr prógressiv rokk og diskó. Því reyndi ég að gera þetta rímix í stíl þessara tveggja tónlistarstefna. Tjekkiði á þessu hér.

Nakamoto Ramen

Í þessari semi-sjálfsmynd sést einnig einn af kokkunum á Nakamoto Ramen sem er nýja uppáhaldið af veitingastöðum hér í borg. Það sem er á boðstólum er ótrúlega sterk-kryddað miso-ramen gert af einstakri list. Fann hann eftir ábendingu frá Saho en hann er í hóflegri fjarlægð frá Nerima en einnig með útibú í Ikebukuro og Shinjuku meðal annars. Hiklaust næsta færsla á Ég elska útlönd þegar ég nenni loks að uppfæra.

Shibuya

Vinnan er hafin að nýju boogie tónlistarmixi, en það mun bera hinn frumlega titil Boogie Mixx II. Hef fundið fullt af nýju skemmtilegu dóti hérna í þessum geira og lagalistinn er sirka 60% tilbúinn. Tek öll lögin upp í tölvuna, geri "edit" af þeim lögum sem þurfa, og svo mixa ég þetta saman með CDJ spilurum sem ég þarf að fá lánaða einhvers staðar. Smelli mixinu upp hér um leið og það er til.

Kita-Senju

Talandi um tónlist að þá vildi ég smella upp einu lagi sem MP3 Vikunnar en þetta lag er búið að vera í stöðugri spilun síðustu daga. Það er lagið Mountain Book með hljómsveitinni OOIOO sem er auka-verkefni trommarans Yoshimi P-We úr Boredoms. Frekar "sækadelik" en aðallega bara gott. Dánlód og áhlustun með að því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.

7 comments


16.06.2008 >> TAICOCLUB '08

Á leiðinni..

Hérna kemur skýrslan frá útihátíðinni TAICOCLUB '08 sem ég fór á þar-síðustu helgi. Við lögðum af stað úr Nerima snemma um morguninn en það var hann Ryano sem að tók að sér aksturinn. Það tók okkur um fimm tíma (með nokkrum stoppum) að komast á leiðarenda, tjaldsvæðið Kodama-no-mori í Nagano héraði. Við drösluðum farangrinum okkar gegnum aðalhliðið og að tjaldsvæðinu og fundum okkur stað til að skella draslinu upp.

Tjaldsvæðið

Svona leit tjaldstæðið út en þetta er tekið við hliðina á öðru af tveimur aðalsviðum. Þetta þarna rétt fyrir ofan miðju er sundlaug en við hentum upp tjaldinu okkar þar við hliðina. Við komum ansi seint á svæðið (um 16:00) en flýttum okkur að setja upp tjaldið svo að við myndum ná öllu aksjoninu.

Boredoms

Fyrsta sveitin sem við sáum var Boredoms (eða V∞redoms) en þau voru að spila á sérstaklega útbúnu sviði sem var inná tjaldsvæðinu. Ég er ekkert súper-mikill noise-rokk aðdáandi en sjóvið þeirra var frábært og ótrúlega vel flutt. Ég segi vel flutt því að þau spila með 3 trommara og samspilið var alveg magnað að sjá.

Tha Blue Herb

Næst á dagskránni var Tha Blue Herb sem var að spila í byrjun kvöldsins. Var mikill aðdáandi þeirra hér áður fyrr en dró þá ályktun síðar meir að ef maður skilur ekki japönsku textana hans BOSS the MC að þá er takmarkað gaman að fylgjast með þeim. Spileríið hjá þeim var samt flott og BOSS hélt stemmningunni merkilega vel uppi þrátt fyrir að vera bara einn á sviðinu með DJ í bakgrunni.

Afrirampo

Fórum upp brekkuna að hinu aðalsviðinu og þar voru stöllurnar í Afrirampo að spila. Hafði ekkert heyrt í þeim áður en þær voru alveg blellaðar og með stórskemmtilegt sjóv. Þær minntu mjög mikið á White Stripes en bara skemmtilegri. Báðar tvær eru greinilega hörku hljóðfæraleikarar og það var sérstaklega gaman að fylgjast með trommaranum. Tók stutt vídjó af þeim sem ég smellti á YouTube og má sjá hér.

Trylltur dans

Strax eftir Afrirampo var rei harakami að spila en hann var svo leiðinlegur að ég fór strax niður á hitt sviðið. Þar var Fumiya Tanaka að spila teknó og dansinn dunaði. Upp við sviðið sáum við svo þennan 9 ára strák að dansa eins og villtur væri og alinn upp af úlfum. Mamma hans var þarna með honum og þurfti að draga hann í burtu þegar var kominn tími fyrir hann að fara í bólið. Teknó-krútt!

Svefn

Eftir trylltan dans var ég orðinn svo þreyttur að ég lagðist út af. Eina vonda við staðinn sem við settum upp tjaldið var það að það var bein lína í hátalarana frá aðalsviðinu og því erfitt að festa blund með dúndrandi teknó í eyrunum. Ég náði þó einhvern veginn að sofa til morguns og vaknaði í súrefnislausu og teknó-mettuðu tjaldi um átta-leytið.

Dagurinn eftir

Teknóið hætti um níu-leytið en dagskráin hélt áfram á hinu sviðinu þar sem var stöðug tónlist til hádegis. Kíkti á klósettið og svo á rölt um svæðið til að ná af mér þynnkunni. Kíkti á hitt sviðið sem leit svona út:

Hitt sviðið

Þeir allra hörðustu voru enn vakandi komnir saman þarna til að dansa við jazzy house. Svo var haugur bara sofandi þarna í brekkunni að fá sólbruna lífs síns. Eftir röltið var ég búinn að ná mér aftur á strik svo ég sneri aftur til tjaldsvæðisins þar sem restin af hópnum var að taka saman dótið. Rétt upp úr hádegi lögðum við svo af stað með draslið í átt að bílnum og keyrðum svo heim á leið.

Heimferð

Fin.

4 comments


14.06.2008 >> Úrslitin 2008

Úrslit í Ljóðakeppninni 2008


7 comments


05.06.2008 >> Ljóðakeppnin 2008

Ljóðakeppnin 2008


15 comments


05.06.2008 >> Beach Gangster

Ueno

Húsnæðismálin hérna í Japan eru ennþá í sama farvegi og þau hafa verið. Enn fremur lítur út fyrir að það verði lítil breyting á því út mánuðinn allavega. Er hér ennþá í frírri gistingu hjá vinafólki en er alltaf með augun opin og lít á íbúðamiðlanir reglulega. Það er eitt pleis hérna í Nerima sem mig langar dálítið að skoða en það er 30fm penthouse íbúð (eitt herbergi) með þakgarði í 5 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Draumur ef að þetta reynist vera eins gott og það hljómar. Þetta er vel í dýrari kantinum (75.000 krónur á mánuði) miðað við sambærilega stórar íbúðir í hverfinu en ég er alvarlega að spá í að kíkja og skoða. Gæti verið að maður næði að ná verðinu eitthvað niður, aldrei að vita.

What?

Hversu mikið langar manni að kíkja á viðburð með álíka titil og Cum Foundation? Ekkert voðalega mikið. Ég er ekkert voðalega búinn að koma mér inní pönkið hérna (sem ég geri ráð fyrir að þetta sé) en þetta er ekkert óalgengt, að böndin kalla sig einhverjum álíka nöfnum. Besta hljómsveitarnafnið þarna er klárlega The Dirty Hospital. Annars voru nokkur góð á safndisknum Do Thank Anal sem ég keypti um daginn, þar á meðal Microwave Oven Soup Rex og Blue Light Anal. Wawaweewa!

Asakusa

Hlakka alveg mussu-mikið til en stefnan er að fara á tónlistarhátíðina Taico Club '08 núna á laugardaginn. Þetta er dagslangur viðburður sem að er haldinn á tjaldsvæði lengst úti í sveit í Nagano-héraði, norðan Tokyo. Ekki ómerkara fólk en Boredoms, Luke Vibert, Tha Blue Herb, Ulrich Schnauss og Rei Harakami munu spila þarna frá kvöldi laugardagsins og fram á hádegi á sunnudeginum. Tek myndavélina með og skila af mér skýrslu eftir herlegheitin.


Kíkti til Kappabashi-dori í Asakusa en þar er einn af fáum stöðum þar sem hægt að er að kaupa súper-raunverulega útlítandi vaxmat (sjá keppni í gerð á svona vaxmat hér). Aðallega er þetta hugsað fyrir útstillingar fyrir veitingastaði en einnig er þetta mjög vinsælt meðal ferðamanna. Fólk fer þarna og kaupir sér vax sushibita eða eitthvað smotterí sem minjagrip. Verðið á þessum "mat" er oft alveg ótrúlega blellað en fullur matardiskur getur kostað allt upp í 20-30.000 kall. Mjög litla bita er hægt að fá fyrir um þúsundkall. Planið er að safna mér nóg af pening og láta útbúa handa mér vaxútgáfu af drykknum Brjálaður Náungi.

Ekoda

Skólinn er kominn á meira skrið og núna stendur til að fara á tvær ráðstefnur með kennaranum og hinum framhaldsnemunum. Það er ein hér í Tokyo aðeins síðar í mánuðinum um tækni og ungmenni sem virkar spennandi. Hin er í enda mánaðarins og er haldin í Sendai og kallast Cultural Typhoon. Við verðum fjögur þarna frá okkar skóla að halda kynningar á rannsóknarverkefnunum okkar. Sem betur fer þarf þetta ekkert að vera súper-akademískt og fræðilegt, mér sýnist ég geta komist upp með að spila smá dubstep og útskýra hvað er í gangi með senuna hér og víðar.

Hundadrykkir

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum en þetta er mynd af hundabjór, hundafreyðivíni, hundavíni og hundasaké. Þessar vörur voru allar á boðstólum í búðinni Tokyu Hands fyrr í dag en sú verslun er svona eins konar rúmfatalagers-verslun sem selur allt mögulegt. Útskýringin sem ég fann fyrir tilvist hundasaké af þessari síðu segir að þetta sé leið til að geta skálað við hundinn sinn. Hmmm?

6 comments


drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__