
|
ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

20.05.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #3
 
- 1
- Höggormurinn var algjör refur og jafnvel meira svo en öll hin klikkuðu dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði pússað upp. Hann tjáði sig við konuna: ,,Er það satt, að Guð hafi rappað að þið mættuð ekki éta af neinu tré í þessum sótblellaða garði`?``
- 2
- Þá rappaði konan til baka: ,,Af þessum djúsí ávöxtum í aldingarðinum megum við alveg borða og allt,
- 3
- en þessir þarna ávextir á þarna trénu, sem stendur þarna í miðjum aldingarðinum, þú veist, af því,` sagði Guð, ,megið þið ekki éta og ekki snerta það, því annars ætlaði hann að drepa okkur.```
- 4
- Þá sagði höggormurinn slælega við konuna: ,,Vissulega munuð þið ekki deyja, lullan þín.
- 5
- Það sem Guð heldur sko, að jafnskjótt sem þið kjamsið aðeins af trénu, munu augu ykkar sperrast og þið munuð verða eins og Guð og vera með fullkomið skyn á hvað er töff og hvað er glatað.``
- 6
- En þegar að konan sá að tréð var bara ansi gott, snoturt og svona girnilegt eitthvað. Þá greip hún einn djúsí ávöxt og hakkaði í sig, og hún gaf einnig gaurnum sínum, sem að var þarna með henni, og hann fékk sér líka.
- 7
- Þá opnuðust augu þeirra beggja, því þau voru með þau lokuð, og þau urðu þess vör, að þau voru helnakin, hann á sprellanum og hún á lullunni, og þau límdu saman svona laufblöð og útbjuggu sér ansi flottar sundskýlur.
- 8
- En þegar þau heyrðu til Guðs, sem var í góðu geimi, labbandi um í ávaxtagarðinum, þá reyndi gaurinn og gellan að fela sig fyrir Guði inn á milli trjánna í aldingarðinum því þau voru hrædd út af morðhótunum hans.
- 9
- Guð öskraði á manninn og sagði við hann: ,,Hvar ertu, gaur?``
- 10
- Gaurinn svaraði: ,,Ég heyrði til þín, maður, ég er bara eitthvað hræddur og nakinn, og ég faldi mig.``
- 11
- En hann mælti: ,,Hver var að segja þér að þú værir nakinn? Varstu að borða af trénu sem ég sagði þér að ég myndi drepa þig ef þú myndir gera, kannski?``
- 12
- Þá svaraði gaurinn: ,,Gellan, sem þú transaðir mig saman með, það var hún sem gaf mér að borða af þessu fjandans tré, og ég fékk mér, þú skilur. Maður segir ekki nei við nakta konu, maður!``
- 13
- Þá sagði Guð við gelluna: ,,Hvað varstu að gera, tussan þín?`` Og gellan svaraði: ,,Höggormurinn lét mig gera þetta svo að ég fékk mér.``
- 14
- Þá sagði Guð við höggorminn: ,,Af því að þú lést þessa tuðru gera þetta skalt þú vera bölvaður meðal allra klikkuðu dýranna sem búa hérna í þessu pleisi. Á maganum skalt þú skríða, eins og einhver drullusuga, og éta mold þar til þú deyrð.
- 15
- Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess. Hvað sem þetta allt þýðir.``
- 16
- En við gelluna sagði hann: ,,Þú munt þjást, þegar þú verður barnshafandi. Þú munt með miklu erfiði pumpa út börnum, og þrátt fyrir það vilja gera allt fyrir gaurinn þinn, en hann skal stjórna þér.``
- 17
- Og við gaurinn sagði hann: ,,Af því að þú hlustaðir á þessa tussu og borðaðir af þessu tré þarna, sem ég bannaði þér meðal annars, þegar ég sagði: ,Þú mátt ekki éta af þessu tré þarna,` þá verði jörðin bölvuð þín vegna. Með miklu veseni skalt þú redda þér mat af jörðinni og eitthvað þannig.
- 18
- Þyrna og þistla skal hún jörðin stinga þig með, og þú skalt éta jurtir og gras eins og hin ómerkilega belja merkurinnar.
- 19
- Með rennandi sveitt andlit skalt þú borða brauðið þitt, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að jörðin er þitt dæmi. Því að þú ert drulla og þú skalt hverfa aftur til drullunnar!``
- 20
- Og gaurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð mamma allra sem lifa.
- 21
- Og Guð útbjó handa gaurnum og gellunni skinn-föt og lét þau klæðast þeim með vilja sínum.
- 22
- Drottinn Guð sagði: ,,Sjáið, gaurinn er orðinn einn af okkur, gaurunum sem skilja muninn á þessu töff og hinu glataða. Ef hann bara hættir að taka ávexti af þessu tréi þarna, þá væri það gott. Og hann myndi lifa að eilífu!``
- 23
- Þá rak Guð hann í burtu frá aldingarðinum Eden til að troða fræjum og drasli í jörðina, þaðan sem hann var tekinn af, drullubarnið.
- 24
- Og hann rak gaurinn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð, letorageib fyrir vestan og eldlogandi sverð til vegarins að töff/glatað trénu.
|
____LINKAR___
___Músík-ég á Myspace
___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á
MySpace
___Japansbloggið
mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur
___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari
Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine
Magazine
____SPILERÍ___
___Ekkert á döfinni...
____MÚSÍK___
___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO
____BÍÓ___
___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)
|
[ Add Comment ]
Steinn Linnet at 21:42 20.05.2008
Vá, þetta er eins og geðveikt röffað AD&D. Mega gott stuff!
Kóbra at 00:11 21.05.2008
Besta biblíufærslan hingað til.
Arnaldur at 10:52 21.05.2008
Jesus!!! LOL
Arnaldur at 10:55 21.05.2008
Þetta er svo sjúklega leikrænt. Ég elska samtölin. (Hefði reyndar viljað sjá stúta í stað drepa.)
Angry god.
Sveinbjörn at 17:59 05.06.2008
Röffað AD&D indeed.
Add Comment
The password to post a comment is blell.