`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


10.05.2008 >> Sasa

Shakuji-Koen

Kíkti til Shakuji-Koen til að taka myndir og elta börn. Lestarstöðin þar er einungis nokkrar stöðvar frá mér, í áttina burtu frá miðbæ Tokyo. Þar er risastór garður þar sem að gamalt fólk safnast saman og tekur ljósmyndir af fuglum. Það er kannski óþarfi að segja en þetta var alveg stórkostlega ómerkileg ferð. Ég náði þó nokkrum ágætis myndum sem að getur talist nokkur árangur.

Shinjuku

Hitti á nokkra af þeim sem ég var að vinna með á World Expo 2005, þ.e. Finnann Piu, Toyomi og Svíann Björn. Við funduðum á veitingastaðnum Seika no Yama-chan sem að á rætur sínar að rekja til Nagoya en þar var heimssýningin haldin. Eftir matinn var það svo karaoke. Karaoke staðurinn var einn sá blellaðasti sem ég hef farið á. Einhvern veginn náðu þeir að troða næstum 100 karaoke herbergjum á eina hæð og það var allt troðið af fullum unglingum og vitleysu að gerast beint fyrir utan hurðina okkar. Ég er meira vanur rólegra og dannaðra karaoke þar sem maður pantar könnur af gin og tónik gegnum dyrasíma með ekkert áreiti utandyra.

Club Module

Kíkti að sjá Shackleton spila læv en hann var að spila fyrr í vikunni á klúbbnum Module í Shibuya. Kíkti "snemma" eða um eitt-leytið og spurði dyravörðinn hvenær Shackleton myndi byrja í von um að það væri bráðum. Hann tjáði mér að hann byrjaði ekki fyrr en 03:00 svo að ég lét mig hverfa og rölti aðeins um Shibuya og kíkti annað í millitíðinni. Þegar ég kom inn á staðinn var alveg cyber-troðið, svo mikið að það tók mig hálftíma að komast á klósettið. Shackleton var fínn en þar sem að þetta var teknó-kvöld að þá spilaði hann næstum eingöngu teknó. Eitt eða tvö af lögunum sem að hann spilaði voru dubstep-skotin. Gott kvöld samt sem áður og ánægður að hafa séð hann spila.

Ueno-koen

Er loksins kominn með stúdentaskírteinið mitt eftir eins mánaðar bið. Kortið gerir mér kleift að komast inn í skólabygginguna eftir að skrifstofunni er búið að loka og jafnfram að nota bókasafn skólans. Þar sem að ég er "rannsóknarnemi" fer ég nefnilega ekki í venjulega tíma (fyrir utan seminar hjá prófessornum) en á að vera að vinna sjálfur mikið að eigin rannsókn. Þess vegna er þetta langþráð dæmi. Er strax búinn að taka út eina bók um popular music studies og hún er alveg drepleiðinleg. Ég ætla að skrifa eitthvað skemmtilegt, það er ákveðið.

Oota

Fór með samnemendum í ferð til Koizumi og Oota að heimsækja skóla fyrir börn brasilískra innflytjenda. Heimsóknin er hluti af verkefni sem felur í sér að gera litla útvarpsstöð og alls kyns "workshop" fyrir börn innflytjenda. Mjög spennandi verkefni og gaman að taka þátt. Við framhaldsnemarnir eigum að útbúa eitthvað skemmtilegt til að gera með börnunum og svo reka útvarpið á netinu. Einhvern tímann í júlí eða ágúst verður svo dagslangur viðburður þar sem útvarpið verður í gangi og workshop-in haldin. Ef að einhver er með góða hugmynd að workshop (eða jafnvel íslenska þýðingu þessa orðs), endilega smella í komment.

Tokorozawa

Í næstu viku fer ég í heimsókn í íslenskutímann í Waseda háskóla. Svo er partí fyrir erlendu skiptinemana í skólanum sem að skólinn heldur. Svo ætla ég að byrja að leita að plötum. Bókin Record Map 2008 er á innkaupalistanum en hún inniheldur kort fyrir allar plötubúðir á stór-Tokyo svæðinu og er á þykkt við stutta Harry Potter bók. Plötubúðir og peningaleysi, here I come.





8 comments have been posted
[ Add Comment ]

Siggi at 16:25 10.05.2008
þú værir grimmur með þessa plötubúðabók undir arminn. ég sé fram á góð boogie-kaup.

workshop eru bara kallaðar smiðjur pon de icelandic

Steinn Linnet at 22:59 10.05.2008
Hvað er eiginlega með töskurnar og "hjálmana" sem þessi börn eru með? Eru japanir hættir með skólabúninga og komnir með hljálma og töskur sem merkja þau or what?

björn kóngur at 00:15 11.05.2008
mér finnst flott hjá þér að vera farinn að elta börn

Kalli at 03:41 11.05.2008
Líst vel á record map, hvað væri slík bók fyrir Reykjavík þykk?

Annars er Shackleton víst kominn mikið yfir í techno fílíng, amk síðustu releasin hans. En gott techno er það.

Árni at 04:13 11.05.2008
Steinn>
Þetta er til að krakkarnir sjáist auðveldlega þegar þau fara í ferðir með skólanum. Þegar einhver týnist í einhverju megaplexi að þá leita kennararnir að gulum hatti.

Björn Kóngur>
Takk. Þú trúir því ekki hvað það eru margir sem að eru á móti þessu. Skrýtið hvernig fólk getur verið stundum.

björn kóngur at 10:12 11.05.2008
Skrýtið að vera á móti þessu. Ætla sko að vona að einhver nenni að elta krakkan minn þegar hann fer að labba

gummi at 14:08 11.05.2008
Haha ég skal elta prinsinn, annars held ég að svona bók fyrir Reykjavík eða ísland verði ekki þykk, né stór....giska á einn miða af post-it.

Arnaldur at 14:45 13.05.2008
Er Shakuji-Koen jafn fyndinn og Sasha Baron Choen?

Allavega styð ég það eindregið að þú eltir sem flest börn. Ennfremur styð ég að workshop verði þýtt sem vinnubúðir eða jafnvel þrælkunarbúðir.

Þá styð ég að lokum að þessi barna-miðuðu workshop sem þú ert að setja á laggirnar verði kölluð barnaþrælkunarbúðir, og sem fyrsta suggestion að skemmtilegu topic-i fyrir barnaþrælkunarbúðirnar þínar sting ég upp á að börnin fái tækifæri til að læra að sauma strigaskó.

Add Comment

Name:

Website:

(optional)

Comment:

drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__