ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

02.05.2008 >> Golden Week
Núna er Japan dottið inn í Golden Week sem er sería af frídögum sem að þetta árið mynda langa helgi og einn lausan frídag. Fyrir marga Japani er þetta lengsta frí sem þeir fá allt árið. Annað lengsta fríið myndi vera Oshōgatsu sem eru nokkrir dagar í byrjun ársins. Heimilisfólkið hérna í Nerima virðist ekki ætla að stinga af neitt nema hún Saho sem ætlar í fjallgöngu í byrjun næstu viku. Hins vegar ætlum við öll að kíkja á morgun í Toshimaen skemmtigarðinn sem er í næsta nágrenni við húsið. Hlakka til.
Hitti á hann Kamasaka sem er fyrrverandi íslensku-nemandi en honum kynntist ég þegar ég kíkti í íslenskutíma í Waseda háskóla og hjálpaði til við framburðaræfingar. Hann fór með mig í Tokyo Opera City þar sem ICC galleríið er að finna. Þar var í gangi alveg mögnuð sýning á alls kyns "tækni vs. list" dóti. Þar á meðal var Tenori-On sem er eitt alblellaðasta tónlistargerðartól sem ég hef nokkurn tímann séð. Sjá á Youtube: Four Tet, Mouse on Mars og Atom Heart spila á græjuna. Lítur fáránlega vel út og ég er í alvöru að íhuga að skella mér á þessa græju.
Þetta lét mig flissa dálítið en þetta skilti er fyrir utan Shinjuku lestarstöðina þar sem langferðabílar stoppa. Gaurinn átti víst við að það væri meira undantekning ef að bílarnir stoppuðu þarna, venjulegi staðurinn væri annars staðar.
Leit mín að Engrish heldur áfram en síðan ég kom hef ég ekki fundið neitt earth-shatteringly fyndið ennþá. Skal pósta upp því sem ég finn um leið og það birtir sig.
Vinkona Saho, hún Haruka átti þrítugsafmæli og því blés hún til veislu á þaki íbúðarblokkarinnar þar sem hún býr. Útsýnið var alveg magnað allan hringinn og veitingarnar voru stórgóðar. Hitti mikið af vinum hennar Haruka og tók góðan haug af ljósmyndum af partíinu og umhverfinu í kring, eins og þessa hér:
Kvöldið endaði með leigubíl heim á tiltölulega kristilegum tíma og af einhverjum ástæðum enduðum við Saho og Aiko með fullan poka af mintulaufum sem verða tekin í góð not núna um helgina.
Að lokum er það splunkunýtt lag frá Soil & "PIMP" Sessions sem að er af smáskífu sem kom út núna fyrir stuttu. Ný breiðskífa fylgir svo í næsta mánuði og ég er meira en spenntur. Hljóðið hjá þeim er orðið aðeins harðara og þessi singúll lofar mjög góðu. Ná í með að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin. Good times.
|
[ Add Comment ]
Arnaldur at 10:22 02.05.2008
So sexy, so coool! Yeah!
(Fíla þristinn btw.)
Mariakun at 16:03 02.05.2008
Hvað ætliði eiginlega að gera við þessi myntulauf eiginlega ha?
Gummi Japan at 16:21 03.05.2008
Um leið og ég sá þessa tónlistargræju hugsaði ég Toshio Iwai, og viti menn hann bjó þetta til. Hann hefur gert slatta af svona dóti í gegnum tíðina og vinnur mikið með samsuðu tónlistar/hljóðs, tækni og lista. Hann gaf út leikinn/listaverkið Electroplankton fyrir Nintendo DS árið 2005 sem ég keypti mér í Japan. Hef nú grun um að þetta sé frekar í líkingu við það en maður samdi eða spilaði ekki beint neitt á það, meira svona gast haft áhrif á fyrirfram forrituð hljóð og takta.
Ansi kúl samt.
Arnaldur at 10:32 07.05.2008
Sjitt maður, MacDonalds eru að fara hækka verðið á yummy, yummy teriyaki burgernum sínum um allt að 40 yen. Think about that!
Hvað ætlarðu að gera?
Árni at 13:15 07.05.2008
Arnaldur>
Ekki neitt! Fékk mér tvöfaldan teriyaki gaur er kallast Mega-Teriyaki og ég held að ég hafi fengið þrjú hjartastopp og eitt kviðslit. Sósufest dauðans. Held að ég fari að gera mér teriyaki borgara bara heima, og svo gráta í þá.
Arnaldur at 09:39 09.05.2008
Hehehe... Sveitt. :)
Arnaldur at 09:39 09.05.2008
Write more stuff!!! ;(
Add Comment