`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


24.05.2008 >> Choco-terebi

Ueno Koen

Kíkti út á lífið í gær með fríðu föruneyti Íslendinga og fórum í karaoke. Staðurinn sem varð fyrir valinu var trendí karaoke-búllan Vogue en þar sungum við í tvo og hálfan klukkutíma. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu gaman það getur verið í karaoke þrátt fyrir að hafa farið oftar en eðlilegt mætti teljast fyrir Íslending. Ég hélt alltaf að maður myndi bara fá leið á þessu og hætta að fara en það lítur ekkert út fyrir það. Svo verð ég líka að sjá til þess að What You Won't Do For Love með Bobby Caldwell haldist inní græjunni með því að syngja það í hvert skipti.

Tokyo Rockabilly Club

Kíkti til Harajuku síðustu helgi og rölti um Yoyogi garðinn. Þar fyrir framan innganginn (eins og vanalega) voru Tokyo Rockabilly Club að spóka sig. Í þetta skiptið var ekki glaðlegur dans uppi á boðstólum en heldur virtist að þeir voru að rífast sín á milli. Það er fátt dramatískara en fúlir rockabilly gaurar. For realsies. Eftir það rölti ég um Harajuku og kíkti til Aoyama í OriginalFake og skoðaði varninginn á boðstólum. Endaði með að kaupa mér þessi sólgleraugu á allt of mikinn pening. Eftir kaupin var það svo smá matur og bjór með Maríu og japönskum vinum okkar þar sem við römbuðum inn á stað sem selur hvalkjöts-hambó á um 700 kall íslenskar. Því miður var ekkert hvalkjöt á boðstólum þann daginn en ég verð að muna eftir því að kíkja þangað aftur einhvern tímann og prufa.

Back to Chill

Kíkti í fyrsta skiptið á dubstep kvöldið Back To Chill á miðvikudaginn. Þar sem dubstep-senan í Japan er viðfangsefni rannsóknar minnar í skólanum lét ég mig hafa það að fara þangað einn og vera alla nóttina á miðvikudegi. Staðurinn sem kvöldið var haldið á heitir Club Asia, tiltölulega stór klúbbur sem er aðallega helgaður hip-hop viðburðum.

Þegar ég kom var staðurinn rétt um hálf-fullur og live hljómsveit kvöldsins Dokkebi-Q var að ljúka settinu sínu. Strax eftir það byrjaði hetja japönsku dubstep senunnar Goth-Trad að spila. Hann var ágætur og spilaði mikið af dubplates og dóti sem ég hafði ekki heyrt áður. Þegar leið á kvöldið byrjaði að þynnast úr hópnum og músíkin varð harðari. Þessi MC sem er á myndinni heitir Chinza DOPENESS og var að bösta alls kyns skrýtið dót yfir spileríið hjá DJ Skyfish og reyndist helvíti skemmtilegt. Þegar ég fór um fjögur-leytið í von um að ná lest að þá var staðurinn orðinn ansi tómlegur en fólk virtist skemmta sér vel. Vona að þeir nái að redda staðnum um helgi næst til að tryggja mætingu en annars var þetta mjög gott kvöld.

Nerima

Var mögulega búinn að minnast á þetta en planið er núna að halda, í sumar eða haust, litla ljósmyndasýningu af myndum frá Íslandi sem ég hef tekið. Er þegar búinn að spurja aðeins í kringum mig varðandi það að finna staði til að hengja upp myndirnar og að finna sponsora en þetta er allt á réttri leið. Gæti verið smuga að ég fái að troði myndunum inn á viðburð sem að vinkona mín heldur alltaf á tveggja mánaða fresti. Það er eins konar klúbbakvöld sem er haldið á bar/kaffihúsi í miðbænum. Eftir klúbbakvöldið myndum við svo semja við staðareigandann um að fá að leyfa myndunum að hanga uppi í viku eða svo.

Love hotel, Shibuya

Fyrst að nýja platan með Soil & "PIMP" Sessions er komin út verð ég að smella upp einu lagi af henni. Titillinn á plötunni er alveg jafn steiktur og á fyrri plötum en þetta stykki kallast PLANET PIMP. Geri aðrir betur. Svo er koverið alveg magnað. Eníhú, hægt er að nálgast lag af nýjustu plötu þeirra með því að smella á emmpéþrí hnappinn í slánni hægra megin. Njótið vel.

3 comments


20.05.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #3

Hin alvöru Biblía 21. aldar3. kafli

1
Höggormurinn var algjör refur og jafnvel meira svo en öll hin klikkuðu dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði pússað upp. Hann tjáði sig við konuna: ,,Er það satt, að Guð hafi rappað að þið mættuð ekki éta af neinu tré í þessum sótblellaða garði`?``
2
Þá rappaði konan til baka: ,,Af þessum djúsí ávöxtum í aldingarðinum megum við alveg borða og allt,
3
en þessir þarna ávextir á þarna trénu, sem stendur þarna í miðjum aldingarðinum, þú veist, af því,` sagði Guð, ,megið þið ekki éta og ekki snerta það, því annars ætlaði hann að drepa okkur.```
4
Þá sagði höggormurinn slælega við konuna: ,,Vissulega munuð þið ekki deyja, lullan þín.
5
Það sem Guð heldur sko, að jafnskjótt sem þið kjamsið aðeins af trénu, munu augu ykkar sperrast og þið munuð verða eins og Guð og vera með fullkomið skyn á hvað er töff og hvað er glatað.``
6
En þegar að konan sá að tréð var bara ansi gott, snoturt og svona girnilegt eitthvað. Þá greip hún einn djúsí ávöxt og hakkaði í sig, og hún gaf einnig gaurnum sínum, sem að var þarna með henni, og hann fékk sér líka.
7
Þá opnuðust augu þeirra beggja, því þau voru með þau lokuð, og þau urðu þess vör, að þau voru helnakin, hann á sprellanum og hún á lullunni, og þau límdu saman svona laufblöð og útbjuggu sér ansi flottar sundskýlur.
8
En þegar þau heyrðu til Guðs, sem var í góðu geimi, labbandi um í ávaxtagarðinum, þá reyndi gaurinn og gellan að fela sig fyrir Guði inn á milli trjánna í aldingarðinum því þau voru hrædd út af morðhótunum hans.
9
Guð öskraði á manninn og sagði við hann: ,,Hvar ertu, gaur?``
10
Gaurinn svaraði: ,,Ég heyrði til þín, maður, ég er bara eitthvað hræddur og nakinn, og ég faldi mig.``
11
En hann mælti: ,,Hver var að segja þér að þú værir nakinn? Varstu að borða af trénu sem ég sagði þér að ég myndi drepa þig ef þú myndir gera, kannski?``
12
Þá svaraði gaurinn: ,,Gellan, sem þú transaðir mig saman með, það var hún sem gaf mér að borða af þessu fjandans tré, og ég fékk mér, þú skilur. Maður segir ekki nei við nakta konu, maður!``
13
Þá sagði Guð við gelluna: ,,Hvað varstu að gera, tussan þín?`` Og gellan svaraði: ,,Höggormurinn lét mig gera þetta svo að ég fékk mér.``
14
Þá sagði Guð við höggorminn: ,,Af því að þú lést þessa tuðru gera þetta skalt þú vera bölvaður meðal allra klikkuðu dýranna sem búa hérna í þessu pleisi. Á maganum skalt þú skríða, eins og einhver drullusuga, og éta mold þar til þú deyrð.
15
Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess. Hvað sem þetta allt þýðir.``
16
En við gelluna sagði hann: ,,Þú munt þjást, þegar þú verður barnshafandi. Þú munt með miklu erfiði pumpa út börnum, og þrátt fyrir það vilja gera allt fyrir gaurinn þinn, en hann skal stjórna þér.``
17
Og við gaurinn sagði hann: ,,Af því að þú hlustaðir á þessa tussu og borðaðir af þessu tré þarna, sem ég bannaði þér meðal annars, þegar ég sagði: ,Þú mátt ekki éta af þessu tré þarna,` þá verði jörðin bölvuð þín vegna. Með miklu veseni skalt þú redda þér mat af jörðinni og eitthvað þannig.
18
Þyrna og þistla skal hún jörðin stinga þig með, og þú skalt éta jurtir og gras eins og hin ómerkilega belja merkurinnar.
19
Með rennandi sveitt andlit skalt þú borða brauðið þitt, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að jörðin er þitt dæmi. Því að þú ert drulla og þú skalt hverfa aftur til drullunnar!``
20
Og gaurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð mamma allra sem lifa.
21
Og Guð útbjó handa gaurnum og gellunni skinn-föt og lét þau klæðast þeim með vilja sínum.
22
Drottinn Guð sagði: ,,Sjáið, gaurinn er orðinn einn af okkur, gaurunum sem skilja muninn á þessu töff og hinu glataða. Ef hann bara hættir að taka ávexti af þessu tréi þarna, þá væri það gott. Og hann myndi lifa að eilífu!``
23
Þá rak Guð hann í burtu frá aldingarðinum Eden til að troða fræjum og drasli í jörðina, þaðan sem hann var tekinn af, drullubarnið.
24
Og hann rak gaurinn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð, letorageib fyrir vestan og eldlogandi sverð til vegarins að töff/glatað trénu.

5 comments


10.05.2008 >> Sasa

Shakuji-Koen

Kíkti til Shakuji-Koen til að taka myndir og elta börn. Lestarstöðin þar er einungis nokkrar stöðvar frá mér, í áttina burtu frá miðbæ Tokyo. Þar er risastór garður þar sem að gamalt fólk safnast saman og tekur ljósmyndir af fuglum. Það er kannski óþarfi að segja en þetta var alveg stórkostlega ómerkileg ferð. Ég náði þó nokkrum ágætis myndum sem að getur talist nokkur árangur.

Shinjuku

Hitti á nokkra af þeim sem ég var að vinna með á World Expo 2005, þ.e. Finnann Piu, Toyomi og Svíann Björn. Við funduðum á veitingastaðnum Seika no Yama-chan sem að á rætur sínar að rekja til Nagoya en þar var heimssýningin haldin. Eftir matinn var það svo karaoke. Karaoke staðurinn var einn sá blellaðasti sem ég hef farið á. Einhvern veginn náðu þeir að troða næstum 100 karaoke herbergjum á eina hæð og það var allt troðið af fullum unglingum og vitleysu að gerast beint fyrir utan hurðina okkar. Ég er meira vanur rólegra og dannaðra karaoke þar sem maður pantar könnur af gin og tónik gegnum dyrasíma með ekkert áreiti utandyra.

Club Module

Kíkti að sjá Shackleton spila læv en hann var að spila fyrr í vikunni á klúbbnum Module í Shibuya. Kíkti "snemma" eða um eitt-leytið og spurði dyravörðinn hvenær Shackleton myndi byrja í von um að það væri bráðum. Hann tjáði mér að hann byrjaði ekki fyrr en 03:00 svo að ég lét mig hverfa og rölti aðeins um Shibuya og kíkti annað í millitíðinni. Þegar ég kom inn á staðinn var alveg cyber-troðið, svo mikið að það tók mig hálftíma að komast á klósettið. Shackleton var fínn en þar sem að þetta var teknó-kvöld að þá spilaði hann næstum eingöngu teknó. Eitt eða tvö af lögunum sem að hann spilaði voru dubstep-skotin. Gott kvöld samt sem áður og ánægður að hafa séð hann spila.

Ueno-koen

Er loksins kominn með stúdentaskírteinið mitt eftir eins mánaðar bið. Kortið gerir mér kleift að komast inn í skólabygginguna eftir að skrifstofunni er búið að loka og jafnfram að nota bókasafn skólans. Þar sem að ég er "rannsóknarnemi" fer ég nefnilega ekki í venjulega tíma (fyrir utan seminar hjá prófessornum) en á að vera að vinna sjálfur mikið að eigin rannsókn. Þess vegna er þetta langþráð dæmi. Er strax búinn að taka út eina bók um popular music studies og hún er alveg drepleiðinleg. Ég ætla að skrifa eitthvað skemmtilegt, það er ákveðið.

Oota

Fór með samnemendum í ferð til Koizumi og Oota að heimsækja skóla fyrir börn brasilískra innflytjenda. Heimsóknin er hluti af verkefni sem felur í sér að gera litla útvarpsstöð og alls kyns "workshop" fyrir börn innflytjenda. Mjög spennandi verkefni og gaman að taka þátt. Við framhaldsnemarnir eigum að útbúa eitthvað skemmtilegt til að gera með börnunum og svo reka útvarpið á netinu. Einhvern tímann í júlí eða ágúst verður svo dagslangur viðburður þar sem útvarpið verður í gangi og workshop-in haldin. Ef að einhver er með góða hugmynd að workshop (eða jafnvel íslenska þýðingu þessa orðs), endilega smella í komment.

Tokorozawa

Í næstu viku fer ég í heimsókn í íslenskutímann í Waseda háskóla. Svo er partí fyrir erlendu skiptinemana í skólanum sem að skólinn heldur. Svo ætla ég að byrja að leita að plötum. Bókin Record Map 2008 er á innkaupalistanum en hún inniheldur kort fyrir allar plötubúðir á stór-Tokyo svæðinu og er á þykkt við stutta Harry Potter bók. Plötubúðir og peningaleysi, here I come.

8 comments


02.05.2008 >> Golden Week

Tsukishima

Núna er Japan dottið inn í Golden Week sem er sería af frídögum sem að þetta árið mynda langa helgi og einn lausan frídag. Fyrir marga Japani er þetta lengsta frí sem þeir fá allt árið. Annað lengsta fríið myndi vera Oshōgatsu sem eru nokkrir dagar í byrjun ársins. Heimilisfólkið hérna í Nerima virðist ekki ætla að stinga af neitt nema hún Saho sem ætlar í fjallgöngu í byrjun næstu viku. Hins vegar ætlum við öll að kíkja á morgun í Toshimaen skemmtigarðinn sem er í næsta nágrenni við húsið. Hlakka til.

Tokyo Opera City, 54F

Hitti á hann Kamasaka sem er fyrrverandi íslensku-nemandi en honum kynntist ég þegar ég kíkti í íslenskutíma í Waseda háskóla og hjálpaði til við framburðaræfingar. Hann fór með mig í Tokyo Opera City þar sem ICC galleríið er að finna. Þar var í gangi alveg mögnuð sýning á alls kyns "tækni vs. list" dóti. Þar á meðal var Tenori-On sem er eitt alblellaðasta tónlistargerðartól sem ég hef nokkurn tímann séð. Sjá á Youtube: Four Tet, Mouse on Mars og Atom Heart spila á græjuna. Lítur fáránlega vel út og ég er í alvöru að íhuga að skella mér á þessa græju.

Shinjuku

Þetta lét mig flissa dálítið en þetta skilti er fyrir utan Shinjuku lestarstöðina þar sem langferðabílar stoppa. Gaurinn átti víst við að það væri meira undantekning ef að bílarnir stoppuðu þarna, venjulegi staðurinn væri annars staðar.

Leit mín að Engrish heldur áfram en síðan ég kom hef ég ekki fundið neitt earth-shatteringly fyndið ennþá. Skal pósta upp því sem ég finn um leið og það birtir sig.

Afmæli Haruka í Yotsuya

Vinkona Saho, hún Haruka átti þrítugsafmæli og því blés hún til veislu á þaki íbúðarblokkarinnar þar sem hún býr. Útsýnið var alveg magnað allan hringinn og veitingarnar voru stórgóðar. Hitti mikið af vinum hennar Haruka og tók góðan haug af ljósmyndum af partíinu og umhverfinu í kring, eins og þessa hér:

Yotsuya

Kvöldið endaði með leigubíl heim á tiltölulega kristilegum tíma og af einhverjum ástæðum enduðum við Saho og Aiko með fullan poka af mintulaufum sem verða tekin í góð not núna um helgina.

Yotsuya

Að lokum er það splunkunýtt lag frá Soil & "PIMP" Sessions sem að er af smáskífu sem kom út núna fyrir stuttu. Ný breiðskífa fylgir svo í næsta mánuði og ég er meira en spenntur. Hljóðið hjá þeim er orðið aðeins harðara og þessi singúll lofar mjög góðu. Ná í með að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin. Good times.

7 comments


drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__