`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


21.04.2008 >> Kvef

Don Quixote, Shibuya

Er nokkurn veginn búinn að ákveða hvar ég muni búa þessi tvö eða þrjú ár í Japan. Eftir að hafa farið vítt og breitt fann ég tvö hverfi sem ég gæti hugsað mér að búa í til lengri tíma. Það eru hverfin Nerima og Ekoda. Ég er búinn að skoða mig frekar mikið um en svo virðist vera að þessi tvö séu bæði hentug upp á skólann og upp á miðbæinn. Núna á næstu vikum er svo planið að fara að skoða einstakar íbúðir og reyna að flytja inn í næsta mánuði. Gott mál.

Ebisu

Skólinn byrjaði á þriðjudaginn og það stefnir allt í mjög skemmtilega önn. Er í tímum á þriðjudögum og miðvikudögum og svo þess utan eru oft fundir á föstudögum og alls kyns lítil verkefni tengd skólanum. Eitt af því er víst útvarp fyrir börn innflytjenda sem á að setja upp í stuttan tíma í nokkrum grunnskólum. Annað er að gera Kita-Senju, bærinn þar sem kampusinn er, að einhvers konar "hot-spot" fyrir raftónlist. Í kringum það verða væntanlega haldnir einhverjir tónleikar sem maður gæti spilað á svo að þetta er allt saman frekar spennandi.

MOT

Kíkti með Nanaho vinkonu í Museum of Contemporary Art Tokyo. Kíktum fyrst í aðal-rýmið þar sem var verið að sýna einhverja óskiljanlega sýningu. Sýningin samanstóð af skilrúmum úr krossviðarplötum sem var búið að setja upp út um allt galleríið og svo ljósmyndir sem sýndu ferlið að setja þetta allt upp. Alveg glatað. Fórum strax eftir það og skoðuðum "permanent" sýningu safnsins sem var mjög góð. Mikið af skemmtilegum nýlegum verkum frá Asíu og víðar. Þarf að kíkja þarna aftur og hripa niður nöfnin á þessum japönsku listamönnum sem voru með verk þar, margt var algjört dúndur.

Unit

Mark kom hérna yfir helgina með Steve Spacek en þeir voru að spila á klúbbi hér í borg. Hitti á þá á fimmtudagskvöldinu og tróð mér með í matinn með prómóterunum sem var mjög fínt. Kíkti líka á kvöldið sjálft á föstudaginn og var fram á morgun. Á laugardeginum vildi svo mjög skemmtilega til að Benga var að spila á sama stað og kvöldið áður og þar sem Mark þekkir til hans að þá náði hann að redda okkur inn á gestalista. Benga var alveg brjálaður og í þessu sturlaða kerfi sem var inni á staðnum. Hann spilaði eingöngu lög af dubplate og mjög mikið af eigin efni. Alveg hreint magnað kvöld.

Kita-Senju

Búinn að vera að taka myndir alveg á fullu síðan ég kom. Held að talan sé komin upp í næstum þúsund myndir. Var búinn að spá í því mikið að fá mér filmuvél meðan ég væri hérna úti en svo í gær var ég svo heppinn að finna mér Polaroid Spectra myndavél á skít og kanil. Fór strax og keypti filmu með tíu myndum en það kostaði mig heldur meira, eða sirka 1.700 krónur íslenskar. Ekki jafn rosalega dýrt og heima á Íslandi en mætti þó alveg vera ódýrara. Ætla svo að sjá hvort ég geti ekki fundið einhvern svaka díl ef ég kaupi 100 myndir eða meira og vera meira duglegur að taka polaroid myndir jafnhliða digital dótinu.

Brjólluhaldarar

Er búinn að hanga heima í allan dag að reyna að ná mér af kvefi. Held að þetta hafi verið líkaminn að segja mér að taka því aðeins rólega því að ég hef eiginlega verið á stöðugi vappi síðan ég lenti hérna í byrjun mánaðarins. Slappa af í dag en fer aftur í skólann á morgun.

Eins og ég lofaði, hér er nýtt japanskt lag á mp3-sniði. Þetta er lag með hljómsveitinni J.A.M. sem samanstendur af píanistanum, bassaleikaranum og trommaranum úr Soil & PIMP Sessions en þeir leika saman fínan djass, dálítið í anda Soil & PIMP. Náið í lagið með því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.





8 comments have been posted
[ Add Comment ]

Steinn Linnet at 09:50 22.04.2008
Mega blingin listaverk "Modern audacity with a hint of draconic capitalism" eins og Herbermer Supperblink sagði í bók sinni "Modern art, future fart".

Arnaldur at 10:04 22.04.2008
Bwlaaargh. Þetta er svo lame, po-mo, bull lista kjaftæði.

Má ég klippa skakka toppinn hans?

Arnaldur at 10:14 22.04.2008
With 3.42 km² of farms, Nerima has the most agricultural land of any of the special wards. Nerima provides 40% of the cabbage grown in Tokyo.

Also in Nerima are (as of 1994) 572 factories employing about 8000 people.

En samt, Nerima til varnar:

Nerima is the birthplace of anime in Japan.

Arnaldur at 10:22 22.04.2008
Sorry hvað ég er að spamma þig hérna.

Var að tékka á Nerima og Ekoda á korti og þetta lítur nú bara frekar röffað út. Ekkert mikið lengra frá Shibuya en Komagome allavega.

Andri Már at 15:20 22.04.2008
Ekki amarlegur félagsskapur þarna úti hjá þér Árni

Árni at 16:07 22.04.2008
Steinn: "Modern art, future fart" er alveg on-the-art-money með blingið. Jafnvel meira svo en hin bókin hans "Art l'art cart start".

Arnaldur: Nerima er ansi töff þrátt fyrir allt kálið. Það er víst hardkor rappsena hérna líka.

Steinn at 02:41 24.04.2008
Herbermer Supperblink er snillingur!

Bjarki Sveins at 21:37 29.04.2008
Hittir Steve Spacek, magnað! Uppgötvaði hann fyrir 2 árum. Dollar með honum er klikkað lag.

Add Comment

Name:

Website:

(optional)

Comment:

drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__