ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

14.04.2008 >> Meira blogg

Leitin að íbúð heldur áfram. Ég er hægt og rólega að þræða þau hverfi sem eru mitt á milli skólans og miðbæjarins og athuga verðin þar. Svo virðist vera að ég þurfi að eyða um 90.000 jenum á mánuði (65.000 kr?) til að fá ágætis íbúð. Ágætis íbúð í þessu tilfelli er sirka 30 fermetra pleis með lítilli stofu með eldhúsi og einu svefnherbergi. Kíkji á tvo staði í dag, vonandi rekst ég á eitthvað sniðugt.

Hitti á hann Shibano í seinustu viku. Hann hitti ég fyrst á Airwaves í fyrra en hann kom á klakann til að taka myndir af Íslandi og músíkfólkinu á hátíðinni. Afraksturinn úr ferðinni ætlar hann svo að nota til að halda sýningu núna í sumar. Í opnuninni vill hann svo að ég DJ-i íslenska músík en því kíkti ég með honum að skoða mögulega staði til að halda sýninguna. Fundum einn mjög flottan stað, á efstu hæð í 10 hæða húsi og undir einhvers konar gler- og stálkeilu. Mjög kúl, vona að staðurinn verði laus og að þetta gangi allt saman eftir.

Kíkti með Maríu á Wedge klúbbinn í Shimokitazawa á laugardaginn til að sjá vin minn Kento spila. Við komum okkur til Shimokitazawa og röltum svo um heillengi að reyna að finna staðinn. Klukkan var að nálgast miðnætti en mikið af búðum voru ennþá opnar. Kíktum í diskabúð og ég keypti mér tvo diska, pönk-safnplötuna Do Thank Anal og "bitpop"-safndiskinn Famicompi. Komumst loks á klúbbinn þar sem við vorum við drykkju og dans fram undir morgun. Eftir klúbbinn var það svo karaoke þar til að lestirnar byrjuðu að ganga. Eðalkvöld.

Ætla að klára kaffibollann og svo koma mér af stað. Viðkomustaðir dagsins eru Mejiro og Ebisu. Báðir eru við aðal-lestaræð Tokyo og vonandi eru ódýrar íbúðir að finna. Nýtt japanskt mp3 og fleiri myndir á leiðinni.
|
[ Add Comment ]
KRiZ at 10:46 14.04.2008
Bitpop er sweet. Mér finnst t.d. ekki vera jól án þess að hlusta á 8 bits of christmas.
Steinn Linnet at 20:32 14.04.2008
Shazaam hvað það er dýrt að leigja 30 fm á 65.000 kall. Vona að þú finnir e-ð nice á næstunni. Good luck, buddy!
Andri Már at 12:33 15.04.2008
Búinn að fá kortið ,niceness
takk fyrir mig Ernie
Add Comment