`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


26.04.2008 >> Meiri myndir

Komagome

Komagome

Nippori

Nippori

Ueno Park

Barnaskólanemendur í Ueno

Omiya

Úthverfi Tokyo

Chosen Gakkou

Kóreskur skóli, Omiya

1 comments


21.04.2008 >> Kvef

Don Quixote, Shibuya

Er nokkurn veginn búinn að ákveða hvar ég muni búa þessi tvö eða þrjú ár í Japan. Eftir að hafa farið vítt og breitt fann ég tvö hverfi sem ég gæti hugsað mér að búa í til lengri tíma. Það eru hverfin Nerima og Ekoda. Ég er búinn að skoða mig frekar mikið um en svo virðist vera að þessi tvö séu bæði hentug upp á skólann og upp á miðbæinn. Núna á næstu vikum er svo planið að fara að skoða einstakar íbúðir og reyna að flytja inn í næsta mánuði. Gott mál.

Ebisu

Skólinn byrjaði á þriðjudaginn og það stefnir allt í mjög skemmtilega önn. Er í tímum á þriðjudögum og miðvikudögum og svo þess utan eru oft fundir á föstudögum og alls kyns lítil verkefni tengd skólanum. Eitt af því er víst útvarp fyrir börn innflytjenda sem á að setja upp í stuttan tíma í nokkrum grunnskólum. Annað er að gera Kita-Senju, bærinn þar sem kampusinn er, að einhvers konar "hot-spot" fyrir raftónlist. Í kringum það verða væntanlega haldnir einhverjir tónleikar sem maður gæti spilað á svo að þetta er allt saman frekar spennandi.

MOT

Kíkti með Nanaho vinkonu í Museum of Contemporary Art Tokyo. Kíktum fyrst í aðal-rýmið þar sem var verið að sýna einhverja óskiljanlega sýningu. Sýningin samanstóð af skilrúmum úr krossviðarplötum sem var búið að setja upp út um allt galleríið og svo ljósmyndir sem sýndu ferlið að setja þetta allt upp. Alveg glatað. Fórum strax eftir það og skoðuðum "permanent" sýningu safnsins sem var mjög góð. Mikið af skemmtilegum nýlegum verkum frá Asíu og víðar. Þarf að kíkja þarna aftur og hripa niður nöfnin á þessum japönsku listamönnum sem voru með verk þar, margt var algjört dúndur.

Unit

Mark kom hérna yfir helgina með Steve Spacek en þeir voru að spila á klúbbi hér í borg. Hitti á þá á fimmtudagskvöldinu og tróð mér með í matinn með prómóterunum sem var mjög fínt. Kíkti líka á kvöldið sjálft á föstudaginn og var fram á morgun. Á laugardeginum vildi svo mjög skemmtilega til að Benga var að spila á sama stað og kvöldið áður og þar sem Mark þekkir til hans að þá náði hann að redda okkur inn á gestalista. Benga var alveg brjálaður og í þessu sturlaða kerfi sem var inni á staðnum. Hann spilaði eingöngu lög af dubplate og mjög mikið af eigin efni. Alveg hreint magnað kvöld.

Kita-Senju

Búinn að vera að taka myndir alveg á fullu síðan ég kom. Held að talan sé komin upp í næstum þúsund myndir. Var búinn að spá í því mikið að fá mér filmuvél meðan ég væri hérna úti en svo í gær var ég svo heppinn að finna mér Polaroid Spectra myndavél á skít og kanil. Fór strax og keypti filmu með tíu myndum en það kostaði mig heldur meira, eða sirka 1.700 krónur íslenskar. Ekki jafn rosalega dýrt og heima á Íslandi en mætti þó alveg vera ódýrara. Ætla svo að sjá hvort ég geti ekki fundið einhvern svaka díl ef ég kaupi 100 myndir eða meira og vera meira duglegur að taka polaroid myndir jafnhliða digital dótinu.

Brjólluhaldarar

Er búinn að hanga heima í allan dag að reyna að ná mér af kvefi. Held að þetta hafi verið líkaminn að segja mér að taka því aðeins rólega því að ég hef eiginlega verið á stöðugi vappi síðan ég lenti hérna í byrjun mánaðarins. Slappa af í dag en fer aftur í skólann á morgun.

Eins og ég lofaði, hér er nýtt japanskt lag á mp3-sniði. Þetta er lag með hljómsveitinni J.A.M. sem samanstendur af píanistanum, bassaleikaranum og trommaranum úr Soil & PIMP Sessions en þeir leika saman fínan djass, dálítið í anda Soil & PIMP. Náið í lagið með því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.

8 comments


21.04.2008 >> Shibuya myndir

Vegavinna

Shibuya..

Shibuya

..og..

Frá Hachiko

..meira Shibuya.

0 comments


14.04.2008 >> Meira blogg

Ikebukuro

Leitin að íbúð heldur áfram. Ég er hægt og rólega að þræða þau hverfi sem eru mitt á milli skólans og miðbæjarins og athuga verðin þar. Svo virðist vera að ég þurfi að eyða um 90.000 jenum á mánuði (65.000 kr?) til að fá ágætis íbúð. Ágætis íbúð í þessu tilfelli er sirka 30 fermetra pleis með lítilli stofu með eldhúsi og einu svefnherbergi. Kíkji á tvo staði í dag, vonandi rekst ég á eitthvað sniðugt.

Shinjuku

Hitti á hann Shibano í seinustu viku. Hann hitti ég fyrst á Airwaves í fyrra en hann kom á klakann til að taka myndir af Íslandi og músíkfólkinu á hátíðinni. Afraksturinn úr ferðinni ætlar hann svo að nota til að halda sýningu núna í sumar. Í opnuninni vill hann svo að ég DJ-i íslenska músík en því kíkti ég með honum að skoða mögulega staði til að halda sýninguna. Fundum einn mjög flottan stað, á efstu hæð í 10 hæða húsi og undir einhvers konar gler- og stálkeilu. Mjög kúl, vona að staðurinn verði laus og að þetta gangi allt saman eftir.

Wedge

Kíkti með Maríu á Wedge klúbbinn í Shimokitazawa á laugardaginn til að sjá vin minn Kento spila. Við komum okkur til Shimokitazawa og röltum svo um heillengi að reyna að finna staðinn. Klukkan var að nálgast miðnætti en mikið af búðum voru ennþá opnar. Kíktum í diskabúð og ég keypti mér tvo diska, pönk-safnplötuna Do Thank Anal og "bitpop"-safndiskinn Famicompi. Komumst loks á klúbbinn þar sem við vorum við drykkju og dans fram undir morgun. Eftir klúbbinn var það svo karaoke þar til að lestirnar byrjuðu að ganga. Eðalkvöld.

Plaggat í Akihabara

Ætla að klára kaffibollann og svo koma mér af stað. Viðkomustaðir dagsins eru Mejiro og Ebisu. Báðir eru við aðal-lestaræð Tokyo og vonandi eru ódýrar íbúðir að finna. Nýtt japanskt mp3 og fleiri myndir á leiðinni.

3 comments


14.04.2008 >> Myndir

Bic Camera

Bic Camera, Shinjuku

Akihabara

Þak í Akihabara

Jumbo

Spilasalur í Shinjuku

Shin-Okubo

Shin-Okubo lestarstöðin

Otsuka

Hótel og bílastæði í Otsuka

0 comments


10.04.2008 >> Dagbók #2

Ride

Var að spila á laugardaginn seinasta á stað sem heitir Secobar. Hitti á Maríu og vinkonu hennar og við fórum saman á staðinn eftir smá mat og drykk. Um leið og ég kom var ekki búið að opna en samt eitthvað panik því að það vantaði DJinn sem átti að byrja á undan mér. Byrjaði því strax að spila og spilaði nokkuð lengur en ég átti að gera en það gekk vel. Heyrði í gaurnum sem að skipuleggur þessi kvöld eftir á og mér heyrðist á honum að hann vildi að ég spilaði meira með krúinu sínu í framtíðinni sem eru bara góðar fréttir.

Shibuya

Sunnudagurinn var rólegur, fór seint á fætur og fór eiginlega beinustu leið heim til kennarans í matarboð sem hann hélt fyrir okkur nemendurna. Fínasti matur og spjall fram á kvöld. Þegar ég sá fram á að enginn væri nógu ókurteis til að vera sá fyrsti til að fara afsakaði ég mig og sagðist þurfa að fara eftir að hafa lesið tölvupóst í símanum sem kom heimför minni ekkert við. Þetta er eitt af þessum japönsku menningarlexíum sem maður lærir, aldrei aldrei fara of snemma heim þegar kollegar hittast. Ástæðan er víst sú að ef maður fer of snemma heim munu hinir baktala um mann, eins og gerist eflaust stöðugt fyrir alla Japani.

Shibuya aftur

Ég elska að vafra bara um borgina eins og flækingur. Fór á mánudaginn og þræddi Yoyogi, Harajuku og Shibuya. Kíkti í slatta af búðum, tók myndir, drakk kaffi og slappaði af. Kíkti í Bathing Ape og það var alveg glatað. Merkilegt hvað þetta merki er orðið útþynnt og óspennandi. Ekki það að ég hafi verið mikill aðdáandi til að byrja með. Kíkti líka í OriginalFake en þar var annað uppi á teningnum, mikið af fínu dóti þar. Annars var þetta bara góður dagur sem endaði í vídjóglápi heima.

Nakano

Þetta er frá Shibuya.

Soil tónleikar

Soil & "PIMP" Sessions spila á mánudagskvöldinu. Ég er ekki frá því að þetta hafa verið einir bestu tónleikar sem ég hef séð með þeim. Þeir tóku bara gömul lög framan af en tvö ný lög eftir uppklappið. Þar á meðal var lagið Storm sem er fyrsti singúllinn af nýju plötunni. Rosalega gott nýja efnið, skal reyna að pósta nýja singúl-laginu upp þegar það er komið út en það ætti að vera ein eða tvær vikur í það. Platan kemur svo út í næsta mánuði.

Boobies

Ef að einhver af ykkur dömunum er í eitthvað vondum málum í júllu-deildinni get ég keypt pakka eða tvo af ofangreindum vörum og sent. Fyndið að það var næstum heill veggur af svona vörum í þessu tiltekna apóteki. Hversu mikið vandamál er þetta eiginlega? Ég veit ekki.

5 comments


05.04.2008 >> Kominn til Japan

TAKK!

Fyrst af öllu vill ég byrja á því að þakka öllum þeim sem komu í kveðjupartíið og þeim sem komu við og kvöddu mig fyrir ferðina. Partíið var mjög skemmtilegt og það var túrbo-gott að hitta alla og verða blelluð í sameiningu. "All-in-all" geðveikt gott kvöld.

Ferðalagið

Ferðalagið tók 24 tíma í allt. Það er frá því að ég hoppaði upp í rútuna á BSÍ og þar til ég labbaði út um "Arrivals" hliðið. Ef við tökum svona "frá hurð til hurðar" pælinguna voru þetta 29 tímar. Flugin voru ágæt, gat sofið í klukkutíma á leiðinni til London og í nokkra tíma á leiðinni til Japan.

Japan

Fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til Tokyo var að fara í klippingu. Hljómar kannski steikt en ég þurfti að kill-a nokkra klukkutíma þar til að Saho var búinn að vinna. Hún hýsir mig nefnilega fyrstu vikurnar. Í fluginu mundi ég eftir ódýrri hárgreiðslustofu stutt frá því þar sem ég bjó svo að ég skellti mér. Strax eftir það fór ég beint og fékk mér ramen núðlur í Ramen Senmonten, einnig í gamla hverfinu. Delicioso.

Lest

Svefninn var náttúrulega í algjörum döðlum fyrstu nóttina þannig að ég svaf ekki nema 6-7 tíma en þrátt fyrir það vaknaði ég geðveikt hress 7 um morguninn. Ég ætla ekki mikið að fara út í smáatriði en ég held ég hafi náð að gera næstum allt sem ég þurfti að gera á þessum degi. Fór snemma af stað og keypti tannbursta, raksápu, sokka, nærbuxur og allt litla dótið sem mig vantaði. Svo skráði ég mig hjá lókalinu og fékk tryggingakort. Keypti síma, fór í nudd, you name it. Fór snemma að sofa og vaknaði eiturferskur daginn eftir.

Sakura

Kíkti í skólann í gær og sá kampusinn. Verð að segja að þetta er geðveikt fínt pleis. Held að ég eigi eftir að spjara mig ágætlega í skólanum. Eftir það kíkti ég til Akihabara sem er ofvaxna raftækjahverfið hér í borg. Keypti alveg blellað lítið minniskort fyrir símann og Casio úr á smápening. Eftir það var það Shibuya þar sem ég kíkti á J.A.M. tónleika í HMV búðinni. Um kvöldið var það svo létt drykkja á lókal ölkelduhúsi og fínerí bara.

New-half pub

Hérna er ein svipmynd af gærkvöldinu. New-half er víst japanska orðið yfir klæð- eða kynskiptinga, man ekki hvort. Fór því miður ekki inn en á eftir að gera það á einhverjum tímapunkti vonandi.

Ætla að brydda upp á nýjung og senda fólki póstkort sem að það vilja. Fyrst að það er svo slullu-ódýrt og auðvelt að framkalla myndir hérna ætla ég að sendi fólki póstkort í formi ljósmyndar með heimilisfangi aftan á. Þessi hugmynd er komin frá Jóa en hann gerði þetta á síðunni sinni. Nafn og heimilisfang í komment ef þú vilt fá póstkort. Meiri fréttir og myndir á leiðinni.

17 comments


drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__