ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa

21.03.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #2
 
- 1
- Þannig varð himininn og jörðin og allt það dæmi til.
- 2
- Guð var búinn transa þetta allt á degi sjö, betur þekktur sem flöskudagur. Hann var drullu þreyttur, og mjög svangur, út af þessu massíva batteríi sem var komið af stað, þannig hann ákvað að lúlla það sem eftir var dagsins.
- 3
- Og Guð blessaði dag sjö sem dag helgaðan sófanum og afslappelsinu sem honum fylgir, því hann var svo rosalega þreyttur.
- 4
- Þetta er rappið um hvaðan heimurinn kom.
- 5
- Þegar töffarinn Guð púslaði saman jörðinni og himninum, voru engin blóm á jörðinni, því að töffarinn Guð var ekki ennþá búinn að úða pleisið með vaxtardjúsnum sem kallast vatn. Plús, það voru engir menn til þess að rækta þau upp,
- 6
- en þoka pusaðist upp úr jörðinni, og hún bleytti allt pleisið.
- 7
- Þá tók Guð upp leir og lék sér aðeins með hann þar til að hann var kominn með svona kall og hann blés töfralofti í nefið á honum, sem var svona sál inní kallinum.
- 8
- Guð var ekki hættur, hann hikaði ekki við að smella niður frekar töff garði í Eden sem var lengst í austri, og eitthvað, og setti þar kallinn, sem hann hafði föndrað.
- 9
- Og grallarinn Guð lét vaxa á jörðinni alls konar tré, sem voru með heví ferska ávexti og girnileg almennt. Svo plantaði hann síspriklandi líftréi í miðjunni á þessu öllu og svona tré sem skildi muninn á töff og glötuðu dóti.
- 10
- Vökvafljót brunaði frá garðinum góða til að vökva svæðið, og þaðan splittaðist það og varð að fjórum sprænum.
- 11
- Fyrsta sprænan kallaðist Píson; hún rennur um Havíla pleisið, þar sem gullið fæst, bling!
- 12
- Og gullið þar er svo gott. Þar fást bedolakharpeis og sjóamsteinar og kalababb og teporadeisí og þannig lagað.
- 13
- Önnur sprænan heitir Gíhon. Hún sprautast um Kúsland.
- 14
- Þriðja sprænan heitir Kíddekel, maður. Hún sprautast vestan Assýríu. Fjórða sprænan er Efrat.
- 15
- Þá pikkaði Guð upp manninn og skutlaði honum til Eden í hvelli.
- 16
- Og Drottinn Guð bauð manninum út og sagði: ,,Fáðu þér eins og þú VILT af öllum þessum trjám,
- 17
- en af töff/glatað trénu mátt þú alls ekki éta, því að ef þú gerir það þá drep ég þig.``
- 18
- Guð hélt áfram: ,,Það er ekki nógu töff ef þú ætlar bara að vera einn og einmana og eitthvað. Ég verð að búa til handa þér einhverja vini.``
- 19
- Þrátt fyrir að vera næstum viss um að hann væri þegar búinn að því, þá bjó Guð til allar brjáluðu verurnar og alla blakanda fuglana og leyfði gaurnum að gefa þeim nöfn. Hann mátti nefna þau hvað sem hann vildi, bókstaflega hvað sem er. Geðveikt!
- 20
- Og gaurinn gaf öllum rollunum nafn og fuglum loftsins og öllum brjáluðu verunum. En jafnvel með öll þessu klikkuðu dýr í kringum sig var hann ekki að tengja við neitt af þeim. Það var enginn vinur í hópnum.
- 21
- Þá svæfði Guð manninn. Þegar hann var alveg viss um að hann væri sofnaður, tók hann eitt af rifbeinunum út og lappaði upp á hann aftur.
- 22
- Og Guð mótaði litla beinagellu úr rifinu, sem hann hafði tekið úr gaurnum, og skutlaði henni við hliðina á honum.
- 23
- Þá sagði gaurinn: ,,Hey, þetta dæmi hérna kom úr mér. Ég ætla að kalla hana karlynju, eða gellu, af því að mér finnst það passa ágætlega.``
- 24
- Þetta er kannski óskylt, en þess vegna beilar maður á mömmu og pabba og flytur inn til kærustunnar, svo að þau verði saman aftur eða eitthvað.
- 25
- Og þau voru bæði helnakin, gaurinn og gellan, og skömmuðust sín ekki neitt fyrir neitt.
|
[ Add Comment ]
Loftur Þórarinsson at 14:26 24.03.2008
fáranlega gott dæmi en það sorglegasta við þetta allt saman er að það er nákvæmlega eins og einhverjar auglýsingar frá SPRON fyrir fermingar...
you go girl
gummi at 23:21 25.03.2008
fáránlega gott! æltaði bara að peppa fellann
Add Comment
The password to post a comment is blell.