`
![]() |
|||||||||||||
|
Glöggir gestir síðunnar gætu hafa tekið eftir litlum hnappi sem ég bætti við í slánna hægra megin á síðunni. Þessi hnappur vísar á síðu sem að ég og Halli höfum verið að vinna að sem heitir Ég elska útlönd. Konseptið bakvið síðuna er að mæla með stöðum í borgum sem við höfum persónulega reynslu af, í hans tilfelli New York og í mínu tilfelli Tokyo. Þessi síða er búin að vera í vinnslu í smá tíma en loksins finnst mér vera orðið nóg af efni á henni til að geta kynnt hana fyrir fólki. Mest megnis eru þetta skemmti- og veitingastaðir sem eru kynntir en fjölbreytnin mun aukast til muna þegar ég verð kominn út. Kíkjið á þetta dilly-dally hér! Nýtt lag vikunnar komið, þetta skiptið frá ansi mögnuðum 21 árs Skota. Músíkin er instrúmental hip-hop, mjög í ætt við Detroit sándið sem J Dilla gerði frægt. Ég reif þetta úr þessu mixi sem að Harmonic 313, eða Mark Pritchard, gerði fyrir þáttinn hennar Mary Anne Hobbs á BBC. Gaurinn var víst að semja við Warp og er að vinna að breiðskífu sem ég er mjög spenntur fyrir ef að hún verður eitthvað í líkingu við þetta lag. Njótið. |
____LINKAR___ ____SPILERÍ___ ___Ekkert á döfinni... ____MÚSÍK___ ____BÍÓ___ ___Taste of Tea (2004) | |||||||||||
![]() |
|||||||||||||
__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__ |
|
||||||||||||
|
|||||||||||||
|
|||||||||||||
|
|||||||||||||
[ Add Comment ]
björn kóngur at 21:00 03.03.2008
Ţarf ađ fá ţetta mix hjá ţér listapjása !
Joi at 01:09 07.03.2008
Ţú ert snillingur. Viltu hlekkja á bloggiđ mitt hér til hliđar? Hafđu ţađ gott kall.
Árni at 01:59 07.03.2008
Nei ţú ert snillingur. Nei ţú! Linkurinn er kominn á sinn stađ.
Add Comment
The password to post a comment is blell.