`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


28.03.2008 >> Kveðjupartí á laugardag!

Komdu

Kveðjupartí fyrir Japansförina með öllu tilheyrandi er núna á laugardaginn 29. mars á Barnum. Þætti mjög gaman að sjá sem flesta þannig að (ef ég þekki þig) droppaðu við á Barnum einhvern tímann á laugardagskvöldið (endilega fyrir TZMP tónleikana klukkan 23:00). Hlakka til að sjá ykkur öll og verða blellaður.

4 comments


21.03.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #2

Hin alvöru Biblía 21. aldar2. kafli

1
Þannig varð himininn og jörðin og allt það dæmi til.
2
Guð var búinn transa þetta allt á degi sjö, betur þekktur sem flöskudagur. Hann var drullu þreyttur, og mjög svangur, út af þessu massíva batteríi sem var komið af stað, þannig hann ákvað að lúlla það sem eftir var dagsins.
3
Og Guð blessaði dag sjö sem dag helgaðan sófanum og afslappelsinu sem honum fylgir, því hann var svo rosalega þreyttur.
4
Þetta er rappið um hvaðan heimurinn kom.
5
Þegar töffarinn Guð púslaði saman jörðinni og himninum, voru engin blóm á jörðinni, því að töffarinn Guð var ekki ennþá búinn að úða pleisið með vaxtardjúsnum sem kallast vatn. Plús, það voru engir menn til þess að rækta þau upp,
6
en þoka pusaðist upp úr jörðinni, og hún bleytti allt pleisið.
7
Þá tók Guð upp leir og lék sér aðeins með hann þar til að hann var kominn með svona kall og hann blés töfralofti í nefið á honum, sem var svona sál inní kallinum.
8
Guð var ekki hættur, hann hikaði ekki við að smella niður frekar töff garði í Eden sem var lengst í austri, og eitthvað, og setti þar kallinn, sem hann hafði föndrað.
9
Og grallarinn Guð lét vaxa á jörðinni alls konar tré, sem voru með heví ferska ávexti og girnileg almennt. Svo plantaði hann síspriklandi líftréi í miðjunni á þessu öllu og svona tré sem skildi muninn á töff og glötuðu dóti.
10
Vökvafljót brunaði frá garðinum góða til að vökva svæðið, og þaðan splittaðist það og varð að fjórum sprænum.
11
Fyrsta sprænan kallaðist Píson; hún rennur um Havíla pleisið, þar sem gullið fæst, bling!
12
Og gullið þar er svo gott. Þar fást bedolakharpeis og sjóamsteinar og kalababb og teporadeisí og þannig lagað.
13
Önnur sprænan heitir Gíhon. Hún sprautast um Kúsland.
14
Þriðja sprænan heitir Kíddekel, maður. Hún sprautast vestan Assýríu. Fjórða sprænan er Efrat.
15
Þá pikkaði Guð upp manninn og skutlaði honum til Eden í hvelli.
16
Og Drottinn Guð bauð manninum út og sagði: ,,Fáðu þér eins og þú VILT af öllum þessum trjám,
17
en af töff/glatað trénu mátt þú alls ekki éta, því að ef þú gerir það þá drep ég þig.``
18
Guð hélt áfram: ,,Það er ekki nógu töff ef þú ætlar bara að vera einn og einmana og eitthvað. Ég verð að búa til handa þér einhverja vini.``
19
Þrátt fyrir að vera næstum viss um að hann væri þegar búinn að því, þá bjó Guð til allar brjáluðu verurnar og alla blakanda fuglana og leyfði gaurnum að gefa þeim nöfn. Hann mátti nefna þau hvað sem hann vildi, bókstaflega hvað sem er. Geðveikt!
20
Og gaurinn gaf öllum rollunum nafn og fuglum loftsins og öllum brjáluðu verunum. En jafnvel með öll þessu klikkuðu dýr í kringum sig var hann ekki að tengja við neitt af þeim. Það var enginn vinur í hópnum.
21
Þá svæfði Guð manninn. Þegar hann var alveg viss um að hann væri sofnaður, tók hann eitt af rifbeinunum út og lappaði upp á hann aftur.
22
Og Guð mótaði litla beinagellu úr rifinu, sem hann hafði tekið úr gaurnum, og skutlaði henni við hliðina á honum.
23
Þá sagði gaurinn: ,,Hey, þetta dæmi hérna kom úr mér. Ég ætla að kalla hana karlynju, eða gellu, af því að mér finnst það passa ágætlega.``
24
Þetta er kannski óskylt, en þess vegna beilar maður á mömmu og pabba og flytur inn til kærustunnar, svo að þau verði saman aftur eða eitthvað.
25
Og þau voru bæði helnakin, gaurinn og gellan, og skömmuðust sín ekki neitt fyrir neitt.

2 comments


20.03.2008 >> MPX

MP3 Vikunnar

Nýja lag vikunnar er í þetta skiptið frá þessum hressu Finnum sem að taka hér ótrúlega gott kover af Winnie The Pooh þemalaginu. Þetta kom út í Japan nýlega á safnskífu af Disney lögum sem voru sett í djass-búning af ýmsum "ný-djössurum". Njótið vel.

1 comments


17.03.2008 >> Red Bull Music Academy

RBMA 2008

Var að sjá að núna er byrjað að taka á móti umsóknum fyrir Red Bull Music Academy sem verður í þetta skiptið haldið í Barcelona. RBMA er árlegt tveggja vikna námskeið í því að gera músík, kennt af mega-góðum tónlistarmönnum og er algjörlega frítt. Meira að segja flugið til og frá staðnum er borgað undir þig. Eina sem þú þarft að gera er að fylla út langa umsókn og senda með CD-R með músík. Ég sótti um þetta í fyrra (komst ekki inn) en ég mæli hiklaust með því að öll þið sem eruð að gera músík sækji um.

Bara það að setja svona umsóknarpakka saman er mjög gott "boost". Bæði kemur þetta manni í gang með að klára gömul lög og gera eitthvað nýtt en líka þá neyðir þetta mann til að skoða katalóginn sinn af músík og fókusa sig dáldið. Svo væri það líka alveg cyber að komast inn og fara frítt til Spánar í tvær vikur.

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ HÉR!

0 comments


13.03.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar

Hin alvöru Biblía 21. aldar1. kafli

1
Gaur, í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2
Jörðin var þá alveg glötuð, og það var rosalega dimmt útum allt. Andi Guðs var að vinna í málinu.
3
Guð sagði: ,,Lýsum upp þetta pleis!`` Og það varð ljós.
4
Guð sá að ljósið var töff, og það var Guð með á tandurhreinu.
5
Guð kallaði ljósið "dag", en þegar það var alveg dimmt sagði hann "nótt". Það varð kvöld og það varð morgunn, fyrsti dagurinn maður!
6
Guð sagði: ,,Verði festing milli vatnanna, og hún greini vötn frá vötnum, skilurðu.``
7
Þá festi Guð dæmið og gerði vötnin, sem voru undir festingunni, frá þeim vötnum, sem voru yfir henni sem voru ský. Og það varð svo geðveikt!
8
Guð kallaði festinguna "himin". Það varð kvöld og svo morgunn. Svo bara dagur númer tvö.
9
Guð sagði: ,,Þið þarna, vatn, breakdansið ykkur saman svo að þurrlendið sjáist.`` Og það varð svo töff.
10
Guð kallaði þurrlendið "jörð", en vatnsklessurnar kallaði hann "sjór". Og Guð var að fíla þetta.
11
Guð sagði: ,,Væri það ekki dáldið töff ef að græn grös, sáðjurtir og aldintré myndu poppa upp úr jörðinni? Sem hvert myndi gefa frá sér ávexti og fræ og eitthvað?`` Jújú, og það varð svo.
12
Jörðin byrjaði bókstaflega að sprauta grænum grösum, jurtum, aldintrjám upp og út um allt allsstaðar. Og Guð sá, ójá, að það var eitthvað töff við þetta.
13
Það kom kvöld og það varð morgunn, svo kom þriðji dagurinn. Heilaga þrenningin maður!
14
Guð rappaði: ,,Verði brjálaður bálköstur á himninum, og líka aðeins minni gaur og þau tákni tíma og þannig.
15
Og þau eru ljós til að lýsa pleisið.`` Og það varð svo. Geðveikt.
16
Guð bjó til tvö risaljósin: stóra ljósið til að lýsa meira og þetta aðeins minna til að vera bara þarna á nóttunni, með smá ljósi, og svo stjörnurnar líka.
17
Guð skaut þessu öllu upp í himininn, dansaði smá hip-hop
18
og bálkestirnir vissu hvað þeir áttu að gera. Og Guð var illa sáttur.
19
Eftir smá kvöld og smá morgunn kom dagur fjögur.
20
Guð sagði: ,,Það er eitthvað líflaust í þessu vatni þarna. Hvernig væri að fá smá sprikl? Svo ekki sé talað um eitthvað blakandi í himininn, gaur!``
21
Þá skapaði Guð öll sjávarspriklandi dýrin og passaði að þau drukknuðu ekki. Svo kastaði hann saman öllum þessu fljúgandi elskum. Og Guð tók eftir því að þetta var orðið bara helvíti geggjað hjá sér.
22
Og Guð blessaði allt í bak og fyrir og rappaði til fuglanna og fiskanna: ,,Enginn tími til að slóra, tími til að upplifa kynlífsóra.``
23
Dagur fimm.
24
Guð sagði: ,,Jörðin er nú meiri dallurinn. Það vantar klárlega einhverja landskríðendur. Kindur, krókódíla og klikkuð dýr. Þannig dót, skilurðu.`` Og það varð nákvæmlega þannig.
25
Guð gerði klikkuðu dýrin, kindurnar og alls kyns krókódíla á jörðina eins og honum einum er lagið. Og Guð sá allar þessar brjáluðu verur og fannst þetta gott hjá sér.
26
Guð sagði: ,,Ég held að það sé kominn tími á að ég geri alvöru gaur, svona eins og mig, líkum mér, þú veist. Hann á ekki eftir að taka við neinum skít frá neinum af þessum brjáluðu verum. Toppurinn í fæðukeðjunni, maður.``
27
Og Guð gerði manninn eins og hann er, hann skapaði hann eftir sjálfum sér, hann skapaði gaur og gellu.
28
Guð gaf þeim æðislegar blessanir, sagði við þau: ,,Hey, verið töff. Eignist börn og farið á staði, ferðist þið aðeins. Ekki gleyma, þið verðið að stjórna þessum fiskum og fuglum og öllum þessu brjáluðu dýrum sem eru að hanga á jörðinni.``
29
Og Guð hélt áfram: ,,Taktu eftir þessu, hérna eru alls konar fræ og alls konar tré og svoleiðis. Þú veist, sem að gefa af sér svona mat. Þið getið borðað það.
30
Öll hin dýrin, allir fuglar og skriðkvikindin á jörðinni mega eiga grösin og jurtirnar til að borða.`` Og það varð svo.
31
Guð rifjaði upp allt sem hann hafði brallað undanfarið, og bara vá, það var frekar töff. Það varð kvöld og síðan kom morgunn, og þá var kominn dagur númer sex.

15 comments


08.03.2008 >> Amy Casa de Vino


Sorrí Naldó og aðrir sem hafa óbeit á embedduðum YouTube klippum, þetta er bara of fyndið.

3 comments


08.03.2008 >> Party Zone í kvöld!

Er að spila í Party Zone á Rás 2 í kvöld, laugardaginn 8. mars. Verð með syrpu í fyrri helmingi þáttarins og byrja stuttlega uppúr 20:00. Broken-beat og kannski smá "nu-jazz" í bland. Vinsamlegast leggjið við hlustir ef að þið eruð nálægt viðtæki.

0 comments


07.03.2008 >> BA í drekafræðum



3 comments


02.03.2008 >> Nýtt nýtt nýtt

Ég elska Tokyo

Glöggir gestir síðunnar gætu hafa tekið eftir litlum hnappi sem ég bætti við í slánna hægra megin á síðunni. Þessi hnappur vísar á síðu sem að ég og Halli höfum verið að vinna að sem heitir Ég elska útlönd. Konseptið bakvið síðuna er að mæla með stöðum í borgum sem við höfum persónulega reynslu af, í hans tilfelli New York og í mínu tilfelli Tokyo. Þessi síða er búin að vera í vinnslu í smá tíma en loksins finnst mér vera orðið nóg af efni á henni til að geta kynnt hana fyrir fólki. Mest megnis eru þetta skemmti- og veitingastaðir sem eru kynntir en fjölbreytnin mun aukast til muna þegar ég verð kominn út. Kíkjið á þetta dilly-dally hér!

Lag vikunnar

Nýtt lag vikunnar komið, þetta skiptið frá ansi mögnuðum 21 árs Skota.  Músíkin er instrúmental hip-hop, mjög í ætt við Detroit sándið sem J Dilla gerði frægt. Ég reif þetta úr þessu mixi sem að Harmonic 313, eða Mark Pritchard, gerði fyrir þáttinn hennar Mary Anne Hobbs á BBC. Gaurinn var víst að semja við Warp og er að vinna að breiðskífu sem ég er mjög spenntur fyrir ef að hún verður eitthvað í líkingu við þetta lag. Njótið.

3 comments


drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__