`

border



22.01.2008 >> Ritdómur: The Truth About Diamonds

Ritdómur #1

Núna, 3 mánuðum, 2 vikum og tveim dögum eftir að ég fékk þessa bók í afmælisgjöf hef ég loksins lokið við hana. Það tók tvær flugferðir og ansi mikla þolinmæði. Mikla, mikla þolinmæði. Að lesa þessa bók er mjög svipað því að sitja í strætó í marga klukkutíma við hliðina á óþolandi fólki sem getur ekki hætt að tala.

Efni: Í stuttu máli fjallar bókin um vinkonu Nicole Richie, hana Chloe (sem er Nicole sjálf), og raunir hennar þegar hún skýst upp á stjörnuhimininn og finnur ástina. Nicole sjálf er sögumaðurinn en hún segir frá hvernig Chloe dregur sig upp úr eiturlyfjaneyslu og verður fræg fyrir auglýsingaherferð sem hún tekur þátt í með vinkonu sinni Simone (Paris Hilton). Þessi Simone reynist svo vera algjör naðra og Chloe lendir í einhverri flækju með fyrirtækið sem framleiddi auglýsingarnar. Þetta endar allt svo með mjög svo skyndilegri "conspiracy" fléttu á 10-undu síðustu síðu bókarinnar og svo með því að hún játar ást sína á DJ Ray, gömlum vin hennar.

Gagnrýni: Það er mjög margt sem gerir þessa bók mjög erfiða lesningu. Allir karakterar bókarinnar eru lítið sem ekkert byggðir upp og eftir allan lesturinn skilja karakterarnir ekkert eftir sig. Það er kannski þess vegna sem að Nicole ákvað að skella inn myndakafla með 15 lit-ljósmyndum af henni inn í miðja bókina en það hjálpar mér bókstaflega ekki neitt. Verstu kaflarnir eru svo þegar að hún Nicole reynir að láta vorkenna sér fyrir þessa stöðugu athygli sem hún fær. Skást er þegar hún gerir manni það mjög ljóst að hún er varla skrifandi.

Orðalagið í bókinni er mestpart afar einfalt og oft barnalegt en samt sem áður hikar hún ekki við að slá aðeins um sig með "flóknum orðum". Til dæmis með því að nota orðasambandið persona non grata óþarflega oft. Svo er þessi setning hérna gott dæmi um rispurnar sem hún tekur með nokkurra blaðsíðna millibili.

Ritdómur #1

Fyrir utan að vera svakalega óþjál setning ætti hún ekki að vera að nota orðin "spurned" og "balustrade" almennt.

En aðeins um það góða, blessunarlega er bókin með nánast tvöföldu línubili og bara rétt rúmar 200 blaðsíður svo að það tekur bara næstum hálft ár að klára hana.

Niðurstaða: Án efa ein versta bók sem ég hef lesið. Því miður er hún ekki nógu slæm til þess að vera fyndin, sem hún er ekki nema örsjaldan. Hún Nicole býr jafnframt yfir svo takmörkuðu ímyndunarafli að það er mjög erfitt að klóra sig í gegnum þetta verk. Best að ljúka þessu með lærdómnum sem að rithöfundurinn kemst að í lok bókar.

Tilvitnun #2

Touché, ya dirty bitch.. touché.

Dómur: Þrjár vofur.





9 comments have been posted
[ Add Comment ]

Siggi P at 00:48 23.01.2008
nokkuð vel af sér vikið að hafa sest niður og klárað þessa bók. ekki hefði ég verið svo mikil kempa

Arnaldur at 04:05 23.01.2008
Þetta er ótrúlegt afrek. Ég er stolltur af þér.

Þú gerir þér samt grein fyrir því að ég ætlaðist eiginlega aldrei til þess að þú læsir hana...

björn ingi at 12:26 23.01.2008
ég er rosalega hissa á þessu öllu saman

Andri Már at 15:30 23.01.2008
Naldo ég hefði einmitt ekki búist við því að Erntron hefði actually lesið hana hvað þá ALLA !
Þetta er virðingarvert Árni virkilega virðingarvert !

Steinn Linnet at 16:06 23.01.2008
Ég held að Nicole Richie hafi aldrei fengið kennslu eða tekið þátt í samræðum um hagfræði. Síðan skilur hún varla orðið gilt. Gold-gilt? What?!?

gummi at 16:29 23.01.2008
sammála birni ég botna bara ekkert í þessu..

annars hve margar vofur eru í boði?

Árni at 17:13 23.01.2008
Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa mest þrjár vofur (eins konar mínus-stjörnur) þannig að hún fær fullt and-hús.

Árni at 17:17 23.01.2008
...eða fullt draugahús. Bara eftir því hvernig þú vilt líta á það.

Árni Bragi at 23:08 23.01.2008
SuperWOW on this one..

Add Comment

The password to post a comment is blell.

Name:

Website:

(optional)

Password:

Comment:


__ELDRI FÆRSLUR__

drippy

____LINKAR___

__ég__

___Músík MySpace

___TZMP MySpace
___Flickr
___Ég elska Tokyo
___Gamla Japansbloggið

__vinirnir__

___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Nerinese
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Kalli
___Miyuki
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn

__músík__

___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___Loronix
___Fan 2 Funk
___The Trance
___Bentleyfunk2
___Cool Spirito
___Playin 4 Keeps
___Dollar Bin Jams
___Beat Electric
___B-Town Hit Parade
___DJ Anonymous
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category

__ýmislegt__

___Video Sift
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___UCB Comedy
___Hollywood Phony
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__