`

border


ÁrniKristjánsson.com - blogg og vitleysa


19.08.2008 >> Niba

af Yamanote línunni

Kominn tími á öppdeit af lífinu hérna í Japan. Þegar það er svona heitt (33°C+) að þá er lítill hvati að kíkja út og því hef ég eytt virku dögunum mikið heima að vinna í tölvunni. Er þessa dagana að gera dreifimiða fyrir sýningu um Jón Svensson (höfund Nonna og Manna bókanna) sem verður haldin í Tokyo í október. Svo er músíkín líka komin á smá skrið en meira um það aðeins neðar í færslunni.

nálægt Ikebukuro

Á laugardaginn héldum við heimilisfólkið dúndur-vel heppnað partí sem bara nokkurn veginn titilinn Íslenska niðurkælings-veislan (á japönsku 納涼アイスランド祭). Við keyptum inn íslenskt lambakjöt (sem var alveg cyber-ljúffengt) og elduðum rétti uppúr bókinni Delicious Iceland sem er í sjálfu sér ótrúlega fyndin bók með geðveikt erfiðum uppskriftum en við náðum að láta þetta allt ganga upp. Gestirnir voru um 15 talsins og almenn ánægja ríkti um veitingarnar og skemmtiatriðin.

Erectro!

Þetta fann ég í plötubúðinni Coconuts Disk í Ikebukuro. Erectro house er víst voða hart og stíft house, ekkert voða ólíkt boner house.

í Nerima

Eins og ég minntist á hér að ofan að þá er ég komin á smá skrið með músíkina. Fyrir utan það að vera stöðugt að vinna að því að klára nýtt boogie mix (vantar bara þrjú lög sem ég var að kaupa af netinu) að þá er ég líka að klára nokkur rímix fyrir vini. Eitt fyrir hann Andy og annað fyrir Marcellus sem að er prómóter/músíker hér í Tokyo sem ég kynntist fyrir nokkrum árum gegnum vinkonu mína. Svo var ég að starta mjög spennandi prójekti með öðrum vini mínum hér en meira um það síðar þegar lögin verða til.

Meiri lestir

Var að kaupa nýtt minniskort í myndavélina í gær. Alveg ótrúlegt hvað verðin eru fljót að lækka í raftækjahverfinu hér í borg. Fékk 4GB SDHC kort á sirka 1000 kr. Svo getur maður fengið 32GB minniskubb á sirka 5000 kall. Mikil snilld. Tilgangurinn með kaupunum er sá að ég ætla að byrja að taka allar myndirnar héðan í frá í RAW sem þýðir að myndavélin þjappar myndirnar ekki neitt (ss. setur þær ekki í JPG-snið). Hver mynd verður þá um 20 mb en það þýðir að maður getur prentað myndirnar sínar í ágætri stærð þegar maður lætur verða af því.

Gengi

Síðast en ekki síst hefur verið mikið að gera í brúðkaupum uppá síðkastið. Mikið að gera þýðir semsagt að það eru búin að vera þrjú brúðkaup sem ég hef ýmist farið í eða sent vídjóskilaboð í. Myndin hér að ofan er úr brúðkaupsveislu hennar Röggu sem ég fór í um daginn. Veislan var mjög fín og það var gaman að hitta á Íslendingana á staðnum og spjalla. Meira svona.

3 comments


09.08.2008 >> Til hamingju!

Til hamingju Steinn og Áróra!

Innilegar hamingjuóskir með giftinguna til Steins og Áróru frá mér og einnig genginu hér í Nerima. Banzai!

3 comments


04.08.2008 >> Ennþá góður



1 comments


25.07.2008 >> Mega-Post

Ferðin til Nikko

Ferð til Nikko #1

Í seinustu viku fór ég í ferð með öllum útlendu nemunum í skólanum til Nikko sem er eins konar Hveragerði Japans. Nóg af jarðhita og heit böð og hótel út um allt. Þetta er ferð sem er farin einu sinni af ári og er niðurgreidd af skólanum og ríkinu. 2 dagar/1 nótt á 3000 jen. Ekki slæmt.

Túrgædinn

Við lögðum af stað snemma á þriðjudagsmorgni og fengum fínan túrgæd sem notaði fínustu og virðulegustu japönsku sem ég hef heyrt. Þéraði okkur í öll í klessu og notaði alls kyns formlegheit á japönsku sem maður heyrir mjög sjaldan.

Gyoza-mura

Stoppuðum í hádegismat í Gyoza-mura sem er frægt fyrir gyoza en það eru eins konar "dumplings" sem eru kínverskir að uppruna...

Gyoza

...og líta svona út.

Edomura

Næsta stopp var Edo Wonderland en það er skemmtigarður sem er byggður upp eins og þorp frá Edo tímabilinu (1603-1868) og þar af leiðandi klæðist allt staffið fötum frá þeim tíma. Þarna var eitthvað leikrit að byrja sem ég náði ekki almennilega að fylgjast með...

Edomura slagur

...en það endaði í slagsmálum. Sem að gellan í græna vann á mjög auðveldan hátt að er virtist.

Hof Tokugawa

Næst skoðuðum við Nikkō Tōshō-gū hofið. Þar er sagt að Shogun-inn Tokugawa Ieyasu sé grafinn en samkvæmt fararstjóranum okkar er það ekkert víst því að hann lét gera margar grafir fyrir sig út um allt Japan. Ástæðan var víst sú að hann vildi ekki að einhver stæli beinunum sínum og gerði eitthvað ljótt við þau.

Three Wise Monkeys

Eitt af því meira töff við þetta hof var að sjá "upprunalegu" Three Wise Monkeys, það er, þessir þrír apar sem að heyra ekkert illt, segja ekkert illt og sjá ekkert illt. Frekar töff.

Landslag #1

Landslagið var mjög flott á leiðinni og það var gott að fá aðeins hvíld á steinsteypu-geðveikinni sem Tokyo er.

Landslag #2

Við vorum um 8 tíma á leiðinni með öllum stoppum en þegar komið var á hótelið var slappað af í klukkutíma fyrir matinn. Fínasta onsen var á hótelinu sem ég kíkti alls þrisvar í og maturinn var einnig mjög góður. Eftir matinn var svo drukkið aðeins fram á nótt en ég var svo uppgefinn að ég lagðist uppí um miðnætti.

Endir

Vaknaði ótrúlega ferskur eftir bara sex tíma svefn og dagskráin hélt áfram. Kíktum í tvö söfn á leiðinni heim og lentum í Tokyo rétt fyrir kvöldmat.

---------------------------------


Brúðkaupið

Brúðkaupssvæðið #1

Síðastliðinn sunnudag kíkti ég með Saho, Aiko og Ryano í brúðkaup vins hennar Saho. Vinur hennar var brúðguminn, gamall félagi hennar úr háskóla.

Brúðkaupssvæðið #2

Svæðið sem brúðkaupið var haldið á var alveg tryllt. Lítill dalur með litla svefnkofa við árbakkann og samkomusvæði fyrir sirka hundrað manns. Athöfnin sjálf var haldin á samkomusvæðinu sem var rétt aftan við bláa tjaldið á myndinni.


Við mættum snemma á svæðið því að Saho og Aiko þurftu að setja upp græjurnar sínar því þær voru nefnilega með litlan konsert um kvöldið sem hljómsveitin Dagua. Litlar polaroid myndir voru teknar af öllum gestunum og hengt upp á töflu sem hér sést en ég er þarna í frönsku fánalitunum efst til vinstri.

Athöfnin

Athöfnin sjálf byrjaði um eftirmiðdaginn þegar pabbi brúðarinnar skutlaði dótturinni í hendur brúðgumans.

Samningurinn

Næsta skref var að lesa hjúskaparheitin og skrifa undir giftingarsamninginn.

Sake-tunnan brotin

Þar á eftir var risastór tunna af sake borin fram og brúðhjónin brutu lokið af henni í sameiningu.

Sake

Eftir það fóru allir og fengu sér sake úr tunnunni.

Tertan skorin

Næst var "photo-op" þegar að brúðhjónin skáru brúðkaupstertuna..

Mocha búið til

..og þar á eftir skiptust brúðhjónin á að lemja sjóðandi heit hrísgrjón með sleggju til að búa til mochi sem er mjög hefðbundið japanskt sælgæti.

Gengið

Eftir athöfnina hófst borðhaldið og allir slöppuðu af og byrjuðu að sötra á þessu gífurlega magni af alls kyns áfengi sem var á boðstólum. Þarna er samankomið mikið af Nerima genginu en á þessum tímapunkti voru allir með sett upp þessi gleraugu sem að gera það að verkum að þegar maður rýnir í ljós/eld að þá sjást hjörtu allt í kring.

Blautt

Fólk fór að busla þegar leið á veisluna og nokkrum heppnum var fleygt í ánna með tilkomandi látum.

Dagua

Hljómsveitin Dagua steig svo á stokk og flutti rétt undir hálftíma af splúnkunýju efni. Setti upp litla klippu af þeim frá spilerí þeirra seinna um kvöldið en klippuna má finna hér.

Varðeldurinn

Kveiktur var varðeldur og drykkjan hélt áfram. Prófessjonal barþjónn var fenginn til en hann blandaði alls kyns kokkteila í mannskapinn samhliða kampavíninu og hinu sullinu. Ég hélt mig við bjórinn sem betur fer.

Ég að spila

Ég tók það að mér að DJa um kvöldið og spilaði í sirka einn og hálfan tíma. Mikið af gestunum hafði farið heim með seinustu lest en þó nokkrir urðu eftir og stemmningin var með eindæmum góð.

Flugeldar

Allir fengu flugelda á einhverju stigi málsins og kveikt var í innibombum sem skutu upp skrauti yfir svæðið.

Á góðri stund

Kallinn!

Meiri varðeldur

Kvöldið varð skemmmtilegra og skemmtilegra og undir lokin hópuðust allir við varðeldinn og það var matreitt yakisoba og þvílíkt magn af kjöti í lýðinn sem var eftir. Eitthvað um 2-3 fór maður svo í bælið en það gistu allir í litlum skálum sem voru á víð og dreif í kringum ánna.

Búið

Fin.

8 comments


12.07.2008 >> Úrslitin 2008

Úrslit Internetkeppninnar 2008


5 comments


03.07.2008 >> Internetkeppnin 2008

Netkeppnin 2008


42 comments


03.07.2008 >> Fjör

Soil & PIMP Sessions

Fór að sjá Soil & PIMP Sessions í seinustu viku en þeir voru að spila í Shibuya AX sem er ansi stór tónleikastaður í miðbæ Tokyo. Tónleikarnir voru mjög góðir, gömlu slagararnir voru á sínum stað en þeir spiluðu einnig mikið af nýju plötunni sem var gaman að heyra "live" í fyrsta sinn. Náði rétt svo að taka örfáar myndir því gæslan var alveg ótrúlega ströng. Tveim mínútum eftir að ég hafði tekið örfáar myndir kom útsendari staðarins að leita mig uppi. Þegar hann kom upp að mér sá hann að ég var útlendingur og gerði því bara með handabendingum "myndavél" og "bannað". Fjúff.

Omiya

Eins og ég hef minnst á áður er eitt af verkefnunum í skólanum að vera með útvarp fyrir börn innflytjenda. Annar liður þessa verkefnis er að kíkja í heimsókn í skólana og vera með vinnusmiðjur þar sem við tökum upp stuttar myndir/kynningar á vídjó með börnunum. Nú þegar erum við búin að fara í tvo skóla, annars vegar fyrir börn brasilískra innflytjenda og hins vegar fyrir börn norður-kóreskra innflytjenda. Báðar ferðirnar gengu mjög vel en ég er búinn að skella upp tveimur myndagalleríum með myndum frá ferðunum en þau sjást hér og hér.

Sendai

Fór til Sendai yfir helgina með kennaranum og samnemendum á symposium-ið/ráðstefnuna Cultural Typhoon. Þar hittust alls kyns fólk úr fræðigeiranum og listamenn til að taka þátt í vinnusmiðjum og málstofum ýmis konar. Við nemendurnir frá skólanum okkar vorum með "media art" listaverk til sýnis og héldum kynningar á rannsóknarverkefnunum okkar. Kynningin mín gekk ágætlega og ég fékk haug af spurningum sem ég blessunarlega gat svarað. Athyglisverðasta sem ég sá var pallborðsumræðurnar með anarkistanum Andrej Grubacic og svo ótrúlega súr málstofa þar sem að fjórir póst-módernistar kepptust í að vera sem mest póst-módernískastir. Hátindi þeirrar umræðu var svo náð þegar að talið fór að berast í "engla" og hvernig við værum öll englar. Frábært.

What what?

Í Sendai hitti ég á snillinginn hann Sato en honum kynntist ég fyrir löngu síðan þegar hann heimsótti Ísland. Hann var einn af mínum fyrstu japönsku vinum og er hiklaust einn af fyndnari Japönum sem ég þekki. Þegar við vorum að rölta um bæinn rákumst við á þetta skilti sem sést á myndinni en það er fyrir hip-hop fatabúðina Sperm. Við fórum inn og þetta var bara ósköp eðlileg búð með enga brund-referensa nema bara í nafni búðarinnar. Veit ekki alveg hvort ég varð fyrir vonbrigðum eða ekki.

Shibuya

Ég er búinn að ákveða þemað og velja myndir fyrir tilvonandi ljósmyndasýningu sem mig langar að halda. Fór í gegnum allar myndirnar mínar af Íslandi frá nóvember 2006 til mars 2008 og valdi út um 30 myndir. Planið er að hafa (á víxl) myndir af fólki á djamminu (já, þú ert kannski á einni af myndunum) og svo af umhverfinu í Reykjavík. Held að þetta geti komið mjög vel út. Næsta verk er að prenta út myndirnar og búa til möppu til að sýna kaffihúsa/gallerí eigendum. Stefnan er svo að hafa sýninguna í október/nóvember.


Sumarfríið er byrjað í skólanum og helst það út september. Ástæða fyrir svona löngu sumarfríi er víst sú að því þetta er listaháskóli er svo mikið af prófum sem taka upp mikinn tíma, s.s. próf á ýmis hljóðfæri. Ég verð hins vegar ekki alveg eirðarlaus því út júlí mun ég halda áfram að lesa og að taka þátt í útvarps-verkefninu. Framundan er svo nóg að gera, gæti farið að vinna smá við þýðingar og svo ætla ég að fara á fullt með músíkína/mixteip-framleiðslu núna á næstunni. Svo lítur út fyrir að ég verði að plötusnúðast í ekki einu heldur tveimur brúðkaupum í sumar (þremur ef ég get DJast gegnum ADSL í brúðkaupi Steins og Áróru).

Talandi um músík, tjekkið á nýju MP3 Vikunnar sem er cyber-ljúft soul lag með hljómsveitinni Side Effect sem er búið að vera í miklu uppáhaldi síðustu daga. Smellið á hnappinn í slánni hægra megin til að hlusta.

0 comments


21.06.2008 >> Sadako-lausnin

Nerima

Rigningatímabilið er byrjað af alvöru og það er rakara en andskotinn akkúrat núna. Svo rakt að eftir að maður tekur sturtu langar maður í aðra 20 mínútum seinna. Maður verður strax rosalega sveittur eftir sturtu og skítugur og það er ekkert að gera í því. Svo verður erfiðara að sofna næturna og maður vaknar sveittur og fjörugur. Svo þarf maður að passa sig að fötin manns byrji ekki að mygla með því að kaupa anti-myglu dót og sjá til þess að fötin þorni að fullu eftir þvott. Það er hins vegar eitthvað dáldið sexí við þetta ástand, en ég kem ekki puttanum á það.

Ueno St.

Gerði rímix fyrir Tesla Girls, aka Jóa Kjartans og Sigga Eggerts, en það er komið upp á mæspeisið þeirra. Stutta forsagan að þessu rímixi er sú að þegar þeir héldu sameiginlega upp á afmælið sitt um árið var afmælisgjöf mín til þeirra rímix. "Twist-ið" var það að ég bað þá um að velja blint tvær tónlistarstefnur (hafði útbúið litla miða alls kyns tónlistarstefnum) og úr því kom úr prógressiv rokk og diskó. Því reyndi ég að gera þetta rímix í stíl þessara tveggja tónlistarstefna. Tjekkiði á þessu hér.

Nakamoto Ramen

Í þessari semi-sjálfsmynd sést einnig einn af kokkunum á Nakamoto Ramen sem er nýja uppáhaldið af veitingastöðum hér í borg. Það sem er á boðstólum er ótrúlega sterk-kryddað miso-ramen gert af einstakri list. Fann hann eftir ábendingu frá Saho en hann er í hóflegri fjarlægð frá Nerima en einnig með útibú í Ikebukuro og Shinjuku meðal annars. Hiklaust næsta færsla á Ég elska útlönd þegar ég nenni loks að uppfæra.

Shibuya

Vinnan er hafin að nýju boogie tónlistarmixi, en það mun bera hinn frumlega titil Boogie Mixx II. Hef fundið fullt af nýju skemmtilegu dóti hérna í þessum geira og lagalistinn er sirka 60% tilbúinn. Tek öll lögin upp í tölvuna, geri "edit" af þeim lögum sem þurfa, og svo mixa ég þetta saman með CDJ spilurum sem ég þarf að fá lánaða einhvers staðar. Smelli mixinu upp hér um leið og það er til.

Kita-Senju

Talandi um tónlist að þá vildi ég smella upp einu lagi sem MP3 Vikunnar en þetta lag er búið að vera í stöðugri spilun síðustu daga. Það er lagið Mountain Book með hljómsveitinni OOIOO sem er auka-verkefni trommarans Yoshimi P-We úr Boredoms. Frekar "sækadelik" en aðallega bara gott. Dánlód og áhlustun með að því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.

7 comments


16.06.2008 >> TAICOCLUB '08

Á leiðinni..

Hérna kemur skýrslan frá útihátíðinni TAICOCLUB '08 sem ég fór á þar-síðustu helgi. Við lögðum af stað úr Nerima snemma um morguninn en það var hann Ryano sem að tók að sér aksturinn. Það tók okkur um fimm tíma (með nokkrum stoppum) að komast á leiðarenda, tjaldsvæðið Kodama-no-mori í Nagano héraði. Við drösluðum farangrinum okkar gegnum aðalhliðið og að tjaldsvæðinu og fundum okkur stað til að skella draslinu upp.

Tjaldsvæðið

Svona leit tjaldstæðið út en þetta er tekið við hliðina á öðru af tveimur aðalsviðum. Þetta þarna rétt fyrir ofan miðju er sundlaug en við hentum upp tjaldinu okkar þar við hliðina. Við komum ansi seint á svæðið (um 16:00) en flýttum okkur að setja upp tjaldið svo að við myndum ná öllu aksjoninu.

Boredoms

Fyrsta sveitin sem við sáum var Boredoms (eða V∞redoms) en þau voru að spila á sérstaklega útbúnu sviði sem var inná tjaldsvæðinu. Ég er ekkert súper-mikill noise-rokk aðdáandi en sjóvið þeirra var frábært og ótrúlega vel flutt. Ég segi vel flutt því að þau spila með 3 trommara og samspilið var alveg magnað að sjá.

Tha Blue Herb

Næst á dagskránni var Tha Blue Herb sem var að spila í byrjun kvöldsins. Var mikill aðdáandi þeirra hér áður fyrr en dró þá ályktun síðar meir að ef maður skilur ekki japönsku textana hans BOSS the MC að þá er takmarkað gaman að fylgjast með þeim. Spileríið hjá þeim var samt flott og BOSS hélt stemmningunni merkilega vel uppi þrátt fyrir að vera bara einn á sviðinu með DJ í bakgrunni.

Afrirampo

Fórum upp brekkuna að hinu aðalsviðinu og þar voru stöllurnar í Afrirampo að spila. Hafði ekkert heyrt í þeim áður en þær voru alveg blellaðar og með stórskemmtilegt sjóv. Þær minntu mjög mikið á White Stripes en bara skemmtilegri. Báðar tvær eru greinilega hörku hljóðfæraleikarar og það var sérstaklega gaman að fylgjast með trommaranum. Tók stutt vídjó af þeim sem ég smellti á YouTube og má sjá hér.

Trylltur dans

Strax eftir Afrirampo var rei harakami að spila en hann var svo leiðinlegur að ég fór strax niður á hitt sviðið. Þar var Fumiya Tanaka að spila teknó og dansinn dunaði. Upp við sviðið sáum við svo þennan 9 ára strák að dansa eins og villtur væri og alinn upp af úlfum. Mamma hans var þarna með honum og þurfti að draga hann í burtu þegar var kominn tími fyrir hann að fara í bólið. Teknó-krútt!

Svefn

Eftir trylltan dans var ég orðinn svo þreyttur að ég lagðist út af. Eina vonda við staðinn sem við settum upp tjaldið var það að það var bein lína í hátalarana frá aðalsviðinu og því erfitt að festa blund með dúndrandi teknó í eyrunum. Ég náði þó einhvern veginn að sofa til morguns og vaknaði í súrefnislausu og teknó-mettuðu tjaldi um átta-leytið.

Dagurinn eftir

Teknóið hætti um níu-leytið en dagskráin hélt áfram á hinu sviðinu þar sem var stöðug tónlist til hádegis. Kíkti á klósettið og svo á rölt um svæðið til að ná af mér þynnkunni. Kíkti á hitt sviðið sem leit svona út:

Hitt sviðið

Þeir allra hörðustu voru enn vakandi komnir saman þarna til að dansa við jazzy house. Svo var haugur bara sofandi þarna í brekkunni að fá sólbruna lífs síns. Eftir röltið var ég búinn að ná mér aftur á strik svo ég sneri aftur til tjaldsvæðisins þar sem restin af hópnum var að taka saman dótið. Rétt upp úr hádegi lögðum við svo af stað með draslið í átt að bílnum og keyrðum svo heim á leið.

Heimferð

Fin.

4 comments


14.06.2008 >> Úrslitin 2008

Úrslit í Ljóðakeppninni 2008


7 comments


05.06.2008 >> Ljóðakeppnin 2008

Ljóðakeppnin 2008


15 comments


05.06.2008 >> Beach Gangster

Ueno

Húsnæðismálin hérna í Japan eru ennþá í sama farvegi og þau hafa verið. Enn fremur lítur út fyrir að það verði lítil breyting á því út mánuðinn allavega. Er hér ennþá í frírri gistingu hjá vinafólki en er alltaf með augun opin og lít á íbúðamiðlanir reglulega. Það er eitt pleis hérna í Nerima sem mig langar dálítið að skoða en það er 30fm penthouse íbúð (eitt herbergi) með þakgarði í 5 mínútna göngufjarlægð frá stöðinni. Draumur ef að þetta reynist vera eins gott og það hljómar. Þetta er vel í dýrari kantinum (75.000 krónur á mánuði) miðað við sambærilega stórar íbúðir í hverfinu en ég er alvarlega að spá í að kíkja og skoða. Gæti verið að maður næði að ná verðinu eitthvað niður, aldrei að vita.

What?

Hversu mikið langar manni að kíkja á viðburð með álíka titil og Cum Foundation? Ekkert voðalega mikið. Ég er ekkert voðalega búinn að koma mér inní pönkið hérna (sem ég geri ráð fyrir að þetta sé) en þetta er ekkert óalgengt, að böndin kalla sig einhverjum álíka nöfnum. Besta hljómsveitarnafnið þarna er klárlega The Dirty Hospital. Annars voru nokkur góð á safndisknum Do Thank Anal sem ég keypti um daginn, þar á meðal Microwave Oven Soup Rex og Blue Light Anal. Wawaweewa!

Asakusa

Hlakka alveg mussu-mikið til en stefnan er að fara á tónlistarhátíðina Taico Club '08 núna á laugardaginn. Þetta er dagslangur viðburður sem að er haldinn á tjaldsvæði lengst úti í sveit í Nagano-héraði, norðan Tokyo. Ekki ómerkara fólk en Boredoms, Luke Vibert, Tha Blue Herb, Ulrich Schnauss og Rei Harakami munu spila þarna frá kvöldi laugardagsins og fram á hádegi á sunnudeginum. Tek myndavélina með og skila af mér skýrslu eftir herlegheitin.


Kíkti til Kappabashi-dori í Asakusa en þar er einn af fáum stöðum þar sem hægt að er að kaupa súper-raunverulega útlítandi vaxmat (sjá keppni í gerð á svona vaxmat hér). Aðallega er þetta hugsað fyrir útstillingar fyrir veitingastaði en einnig er þetta mjög vinsælt meðal ferðamanna. Fólk fer þarna og kaupir sér vax sushibita eða eitthvað smotterí sem minjagrip. Verðið á þessum "mat" er oft alveg ótrúlega blellað en fullur matardiskur getur kostað allt upp í 20-30.000 kall. Mjög litla bita er hægt að fá fyrir um þúsundkall. Planið er að safna mér nóg af pening og láta útbúa handa mér vaxútgáfu af drykknum Brjálaður Náungi.

Ekoda

Skólinn er kominn á meira skrið og núna stendur til að fara á tvær ráðstefnur með kennaranum og hinum framhaldsnemunum. Það er ein hér í Tokyo aðeins síðar í mánuðinum um tækni og ungmenni sem virkar spennandi. Hin er í enda mánaðarins og er haldin í Sendai og kallast Cultural Typhoon. Við verðum fjögur þarna frá okkar skóla að halda kynningar á rannsóknarverkefnunum okkar. Sem betur fer þarf þetta ekkert að vera súper-akademískt og fræðilegt, mér sýnist ég geta komist upp með að spila smá dubstep og útskýra hvað er í gangi með senuna hér og víðar.

Hundadrykkir

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum en þetta er mynd af hundabjór, hundafreyðivíni, hundavíni og hundasaké. Þessar vörur voru allar á boðstólum í búðinni Tokyu Hands fyrr í dag en sú verslun er svona eins konar rúmfatalagers-verslun sem selur allt mögulegt. Útskýringin sem ég fann fyrir tilvist hundasaké af þessari síðu segir að þetta sé leið til að geta skálað við hundinn sinn. Hmmm?

6 comments


24.05.2008 >> Choco-terebi

Ueno Koen

Kíkti út á lífið í gær með fríðu föruneyti Íslendinga og fórum í karaoke. Staðurinn sem varð fyrir valinu var trendí karaoke-búllan Vogue en þar sungum við í tvo og hálfan klukkutíma. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu gaman það getur verið í karaoke þrátt fyrir að hafa farið oftar en eðlilegt mætti teljast fyrir Íslending. Ég hélt alltaf að maður myndi bara fá leið á þessu og hætta að fara en það lítur ekkert út fyrir það. Svo verð ég líka að sjá til þess að What You Won't Do For Love með Bobby Caldwell haldist inní græjunni með því að syngja það í hvert skipti.

Tokyo Rockabilly Club

Kíkti til Harajuku síðustu helgi og rölti um Yoyogi garðinn. Þar fyrir framan innganginn (eins og vanalega) voru Tokyo Rockabilly Club að spóka sig. Í þetta skiptið var ekki glaðlegur dans uppi á boðstólum en heldur virtist að þeir voru að rífast sín á milli. Það er fátt dramatískara en fúlir rockabilly gaurar. For realsies. Eftir það rölti ég um Harajuku og kíkti til Aoyama í OriginalFake og skoðaði varninginn á boðstólum. Endaði með að kaupa mér þessi sólgleraugu á allt of mikinn pening. Eftir kaupin var það svo smá matur og bjór með Maríu og japönskum vinum okkar þar sem við römbuðum inn á stað sem selur hvalkjöts-hambó á um 700 kall íslenskar. Því miður var ekkert hvalkjöt á boðstólum þann daginn en ég verð að muna eftir því að kíkja þangað aftur einhvern tímann og prufa.

Back to Chill

Kíkti í fyrsta skiptið á dubstep kvöldið Back To Chill á miðvikudaginn. Þar sem dubstep-senan í Japan er viðfangsefni rannsóknar minnar í skólanum lét ég mig hafa það að fara þangað einn og vera alla nóttina á miðvikudegi. Staðurinn sem kvöldið var haldið á heitir Club Asia, tiltölulega stór klúbbur sem er aðallega helgaður hip-hop viðburðum.

Þegar ég kom var staðurinn rétt um hálf-fullur og live hljómsveit kvöldsins Dokkebi-Q var að ljúka settinu sínu. Strax eftir það byrjaði hetja japönsku dubstep senunnar Goth-Trad að spila. Hann var ágætur og spilaði mikið af dubplates og dóti sem ég hafði ekki heyrt áður. Þegar leið á kvöldið byrjaði að þynnast úr hópnum og músíkin varð harðari. Þessi MC sem er á myndinni heitir Chinza DOPENESS og var að bösta alls kyns skrýtið dót yfir spileríið hjá DJ Skyfish og reyndist helvíti skemmtilegt. Þegar ég fór um fjögur-leytið í von um að ná lest að þá var staðurinn orðinn ansi tómlegur en fólk virtist skemmta sér vel. Vona að þeir nái að redda staðnum um helgi næst til að tryggja mætingu en annars var þetta mjög gott kvöld.

Nerima

Var mögulega búinn að minnast á þetta en planið er núna að halda, í sumar eða haust, litla ljósmyndasýningu af myndum frá Íslandi sem ég hef tekið. Er þegar búinn að spurja aðeins í kringum mig varðandi það að finna staði til að hengja upp myndirnar og að finna sponsora en þetta er allt á réttri leið. Gæti verið smuga að ég fái að troði myndunum inn á viðburð sem að vinkona mín heldur alltaf á tveggja mánaða fresti. Það er eins konar klúbbakvöld sem er haldið á bar/kaffihúsi í miðbænum. Eftir klúbbakvöldið myndum við svo semja við staðareigandann um að fá að leyfa myndunum að hanga uppi í viku eða svo.

Love hotel, Shibuya

Fyrst að nýja platan með Soil & "PIMP" Sessions er komin út verð ég að smella upp einu lagi af henni. Titillinn á plötunni er alveg jafn steiktur og á fyrri plötum en þetta stykki kallast PLANET PIMP. Geri aðrir betur. Svo er koverið alveg magnað. Eníhú, hægt er að nálgast lag af nýjustu plötu þeirra með því að smella á emmpéþrí hnappinn í slánni hægra megin. Njótið vel.

3 comments


20.05.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #3

Hin alvöru Biblía 21. aldar3. kafli

1
Höggormurinn var algjör refur og jafnvel meira svo en öll hin klikkuðu dýr merkurinnar, sem Drottinn Guð hafði pússað upp. Hann tjáði sig við konuna: ,,Er það satt, að Guð hafi rappað að þið mættuð ekki éta af neinu tré í þessum sótblellaða garði`?``
2
Þá rappaði konan til baka: ,,Af þessum djúsí ávöxtum í aldingarðinum megum við alveg borða og allt,
3
en þessir þarna ávextir á þarna trénu, sem stendur þarna í miðjum aldingarðinum, þú veist, af því,` sagði Guð, ,megið þið ekki éta og ekki snerta það, því annars ætlaði hann að drepa okkur.```
4
Þá sagði höggormurinn slælega við konuna: ,,Vissulega munuð þið ekki deyja, lullan þín.
5
Það sem Guð heldur sko, að jafnskjótt sem þið kjamsið aðeins af trénu, munu augu ykkar sperrast og þið munuð verða eins og Guð og vera með fullkomið skyn á hvað er töff og hvað er glatað.``
6
En þegar að konan sá að tréð var bara ansi gott, snoturt og svona girnilegt eitthvað. Þá greip hún einn djúsí ávöxt og hakkaði í sig, og hún gaf einnig gaurnum sínum, sem að var þarna með henni, og hann fékk sér líka.
7
Þá opnuðust augu þeirra beggja, því þau voru með þau lokuð, og þau urðu þess vör, að þau voru helnakin, hann á sprellanum og hún á lullunni, og þau límdu saman svona laufblöð og útbjuggu sér ansi flottar sundskýlur.
8
En þegar þau heyrðu til Guðs, sem var í góðu geimi, labbandi um í ávaxtagarðinum, þá reyndi gaurinn og gellan að fela sig fyrir Guði inn á milli trjánna í aldingarðinum því þau voru hrædd út af morðhótunum hans.
9
Guð öskraði á manninn og sagði við hann: ,,Hvar ertu, gaur?``
10
Gaurinn svaraði: ,,Ég heyrði til þín, maður, ég er bara eitthvað hræddur og nakinn, og ég faldi mig.``
11
En hann mælti: ,,Hver var að segja þér að þú værir nakinn? Varstu að borða af trénu sem ég sagði þér að ég myndi drepa þig ef þú myndir gera, kannski?``
12
Þá svaraði gaurinn: ,,Gellan, sem þú transaðir mig saman með, það var hún sem gaf mér að borða af þessu fjandans tré, og ég fékk mér, þú skilur. Maður segir ekki nei við nakta konu, maður!``
13
Þá sagði Guð við gelluna: ,,Hvað varstu að gera, tussan þín?`` Og gellan svaraði: ,,Höggormurinn lét mig gera þetta svo að ég fékk mér.``
14
Þá sagði Guð við höggorminn: ,,Af því að þú lést þessa tuðru gera þetta skalt þú vera bölvaður meðal allra klikkuðu dýranna sem búa hérna í þessu pleisi. Á maganum skalt þú skríða, eins og einhver drullusuga, og éta mold þar til þú deyrð.
15
Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess. Hvað sem þetta allt þýðir.``
16
En við gelluna sagði hann: ,,Þú munt þjást, þegar þú verður barnshafandi. Þú munt með miklu erfiði pumpa út börnum, og þrátt fyrir það vilja gera allt fyrir gaurinn þinn, en hann skal stjórna þér.``
17
Og við gaurinn sagði hann: ,,Af því að þú hlustaðir á þessa tussu og borðaðir af þessu tré þarna, sem ég bannaði þér meðal annars, þegar ég sagði: ,Þú mátt ekki éta af þessu tré þarna,` þá verði jörðin bölvuð þín vegna. Með miklu veseni skalt þú redda þér mat af jörðinni og eitthvað þannig.
18
Þyrna og þistla skal hún jörðin stinga þig með, og þú skalt éta jurtir og gras eins og hin ómerkilega belja merkurinnar.
19
Með rennandi sveitt andlit skalt þú borða brauðið þitt, þangað til þú hverfur aftur til jarðarinnar, því að jörðin er þitt dæmi. Því að þú ert drulla og þú skalt hverfa aftur til drullunnar!``
20
Og gaurinn nefndi konu sína Evu, því að hún varð mamma allra sem lifa.
21
Og Guð útbjó handa gaurnum og gellunni skinn-föt og lét þau klæðast þeim með vilja sínum.
22
Drottinn Guð sagði: ,,Sjáið, gaurinn er orðinn einn af okkur, gaurunum sem skilja muninn á þessu töff og hinu glataða. Ef hann bara hættir að taka ávexti af þessu tréi þarna, þá væri það gott. Og hann myndi lifa að eilífu!``
23
Þá rak Guð hann í burtu frá aldingarðinum Eden til að troða fræjum og drasli í jörðina, þaðan sem hann var tekinn af, drullubarnið.
24
Og hann rak gaurinn burt og setti kerúbana fyrir austan Edengarð, letorageib fyrir vestan og eldlogandi sverð til vegarins að töff/glatað trénu.

5 comments


10.05.2008 >> Sasa

Shakuji-Koen

Kíkti til Shakuji-Koen til að taka myndir og elta börn. Lestarstöðin þar er einungis nokkrar stöðvar frá mér, í áttina burtu frá miðbæ Tokyo. Þar er risastór garður þar sem að gamalt fólk safnast saman og tekur ljósmyndir af fuglum. Það er kannski óþarfi að segja en þetta var alveg stórkostlega ómerkileg ferð. Ég náði þó nokkrum ágætis myndum sem að getur talist nokkur árangur.

Shinjuku

Hitti á nokkra af þeim sem ég var að vinna með á World Expo 2005, þ.e. Finnann Piu, Toyomi og Svíann Björn. Við funduðum á veitingastaðnum Seika no Yama-chan sem að á rætur sínar að rekja til Nagoya en þar var heimssýningin haldin. Eftir matinn var það svo karaoke. Karaoke staðurinn var einn sá blellaðasti sem ég hef farið á. Einhvern veginn náðu þeir að troða næstum 100 karaoke herbergjum á eina hæð og það var allt troðið af fullum unglingum og vitleysu að gerast beint fyrir utan hurðina okkar. Ég er meira vanur rólegra og dannaðra karaoke þar sem maður pantar könnur af gin og tónik gegnum dyrasíma með ekkert áreiti utandyra.

Club Module

Kíkti að sjá Shackleton spila læv en hann var að spila fyrr í vikunni á klúbbnum Module í Shibuya. Kíkti "snemma" eða um eitt-leytið og spurði dyravörðinn hvenær Shackleton myndi byrja í von um að það væri bráðum. Hann tjáði mér að hann byrjaði ekki fyrr en 03:00 svo að ég lét mig hverfa og rölti aðeins um Shibuya og kíkti annað í millitíðinni. Þegar ég kom inn á staðinn var alveg cyber-troðið, svo mikið að það tók mig hálftíma að komast á klósettið. Shackleton var fínn en þar sem að þetta var teknó-kvöld að þá spilaði hann næstum eingöngu teknó. Eitt eða tvö af lögunum sem að hann spilaði voru dubstep-skotin. Gott kvöld samt sem áður og ánægður að hafa séð hann spila.

Ueno-koen

Er loksins kominn með stúdentaskírteinið mitt eftir eins mánaðar bið. Kortið gerir mér kleift að komast inn í skólabygginguna eftir að skrifstofunni er búið að loka og jafnfram að nota bókasafn skólans. Þar sem að ég er "rannsóknarnemi" fer ég nefnilega ekki í venjulega tíma (fyrir utan seminar hjá prófessornum) en á að vera að vinna sjálfur mikið að eigin rannsókn. Þess vegna er þetta langþráð dæmi. Er strax búinn að taka út eina bók um popular music studies og hún er alveg drepleiðinleg. Ég ætla að skrifa eitthvað skemmtilegt, það er ákveðið.

Oota

Fór með samnemendum í ferð til Koizumi og Oota að heimsækja skóla fyrir börn brasilískra innflytjenda. Heimsóknin er hluti af verkefni sem felur í sér að gera litla útvarpsstöð og alls kyns "workshop" fyrir börn innflytjenda. Mjög spennandi verkefni og gaman að taka þátt. Við framhaldsnemarnir eigum að útbúa eitthvað skemmtilegt til að gera með börnunum og svo reka útvarpið á netinu. Einhvern tímann í júlí eða ágúst verður svo dagslangur viðburður þar sem útvarpið verður í gangi og workshop-in haldin. Ef að einhver er með góða hugmynd að workshop (eða jafnvel íslenska þýðingu þessa orðs), endilega smella í komment.

Tokorozawa

Í næstu viku fer ég í heimsókn í íslenskutímann í Waseda háskóla. Svo er partí fyrir erlendu skiptinemana í skólanum sem að skólinn heldur. Svo ætla ég að byrja að leita að plötum. Bókin Record Map 2008 er á innkaupalistanum en hún inniheldur kort fyrir allar plötubúðir á stór-Tokyo svæðinu og er á þykkt við stutta Harry Potter bók. Plötubúðir og peningaleysi, here I come.

8 comments


02.05.2008 >> Golden Week

Tsukishima

Núna er Japan dottið inn í Golden Week sem er sería af frídögum sem að þetta árið mynda langa helgi og einn lausan frídag. Fyrir marga Japani er þetta lengsta frí sem þeir fá allt árið. Annað lengsta fríið myndi vera Oshōgatsu sem eru nokkrir dagar í byrjun ársins. Heimilisfólkið hérna í Nerima virðist ekki ætla að stinga af neitt nema hún Saho sem ætlar í fjallgöngu í byrjun næstu viku. Hins vegar ætlum við öll að kíkja á morgun í Toshimaen skemmtigarðinn sem er í næsta nágrenni við húsið. Hlakka til.

Tokyo Opera City, 54F

Hitti á hann Kamasaka sem er fyrrverandi íslensku-nemandi en honum kynntist ég þegar ég kíkti í íslenskutíma í Waseda háskóla og hjálpaði til við framburðaræfingar. Hann fór með mig í Tokyo Opera City þar sem ICC galleríið er að finna. Þar var í gangi alveg mögnuð sýning á alls kyns "tækni vs. list" dóti. Þar á meðal var Tenori-On sem er eitt alblellaðasta tónlistargerðartól sem ég hef nokkurn tímann séð. Sjá á Youtube: Four Tet, Mouse on Mars og Atom Heart spila á græjuna. Lítur fáránlega vel út og ég er í alvöru að íhuga að skella mér á þessa græju.

Shinjuku

Þetta lét mig flissa dálítið en þetta skilti er fyrir utan Shinjuku lestarstöðina þar sem langferðabílar stoppa. Gaurinn átti víst við að það væri meira undantekning ef að bílarnir stoppuðu þarna, venjulegi staðurinn væri annars staðar.

Leit mín að Engrish heldur áfram en síðan ég kom hef ég ekki fundið neitt earth-shatteringly fyndið ennþá. Skal pósta upp því sem ég finn um leið og það birtir sig.

Afmæli Haruka í Yotsuya

Vinkona Saho, hún Haruka átti þrítugsafmæli og því blés hún til veislu á þaki íbúðarblokkarinnar þar sem hún býr. Útsýnið var alveg magnað allan hringinn og veitingarnar voru stórgóðar. Hitti mikið af vinum hennar Haruka og tók góðan haug af ljósmyndum af partíinu og umhverfinu í kring, eins og þessa hér:

Yotsuya

Kvöldið endaði með leigubíl heim á tiltölulega kristilegum tíma og af einhverjum ástæðum enduðum við Saho og Aiko með fullan poka af mintulaufum sem verða tekin í góð not núna um helgina.

Yotsuya

Að lokum er það splunkunýtt lag frá Soil & "PIMP" Sessions sem að er af smáskífu sem kom út núna fyrir stuttu. Ný breiðskífa fylgir svo í næsta mánuði og ég er meira en spenntur. Hljóðið hjá þeim er orðið aðeins harðara og þessi singúll lofar mjög góðu. Ná í með að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin. Good times.

7 comments


26.04.2008 >> Meiri myndir

Komagome

Komagome

Nippori

Nippori

Ueno Park

Barnaskólanemendur í Ueno

Omiya

Úthverfi Tokyo

Chosen Gakkou

Kóreskur skóli, Omiya

1 comments


21.04.2008 >> Kvef

Don Quixote, Shibuya

Er nokkurn veginn búinn að ákveða hvar ég muni búa þessi tvö eða þrjú ár í Japan. Eftir að hafa farið vítt og breitt fann ég tvö hverfi sem ég gæti hugsað mér að búa í til lengri tíma. Það eru hverfin Nerima og Ekoda. Ég er búinn að skoða mig frekar mikið um en svo virðist vera að þessi tvö séu bæði hentug upp á skólann og upp á miðbæinn. Núna á næstu vikum er svo planið að fara að skoða einstakar íbúðir og reyna að flytja inn í næsta mánuði. Gott mál.

Ebisu

Skólinn byrjaði á þriðjudaginn og það stefnir allt í mjög skemmtilega önn. Er í tímum á þriðjudögum og miðvikudögum og svo þess utan eru oft fundir á föstudögum og alls kyns lítil verkefni tengd skólanum. Eitt af því er víst útvarp fyrir börn innflytjenda sem á að setja upp í stuttan tíma í nokkrum grunnskólum. Annað er að gera Kita-Senju, bærinn þar sem kampusinn er, að einhvers konar "hot-spot" fyrir raftónlist. Í kringum það verða væntanlega haldnir einhverjir tónleikar sem maður gæti spilað á svo að þetta er allt saman frekar spennandi.

MOT

Kíkti með Nanaho vinkonu í Museum of Contemporary Art Tokyo. Kíktum fyrst í aðal-rýmið þar sem var verið að sýna einhverja óskiljanlega sýningu. Sýningin samanstóð af skilrúmum úr krossviðarplötum sem var búið að setja upp út um allt galleríið og svo ljósmyndir sem sýndu ferlið að setja þetta allt upp. Alveg glatað. Fórum strax eftir það og skoðuðum "permanent" sýningu safnsins sem var mjög góð. Mikið af skemmtilegum nýlegum verkum frá Asíu og víðar. Þarf að kíkja þarna aftur og hripa niður nöfnin á þessum japönsku listamönnum sem voru með verk þar, margt var algjört dúndur.

Unit

Mark kom hérna yfir helgina með Steve Spacek en þeir voru að spila á klúbbi hér í borg. Hitti á þá á fimmtudagskvöldinu og tróð mér með í matinn með prómóterunum sem var mjög fínt. Kíkti líka á kvöldið sjálft á föstudaginn og var fram á morgun. Á laugardeginum vildi svo mjög skemmtilega til að Benga var að spila á sama stað og kvöldið áður og þar sem Mark þekkir til hans að þá náði hann að redda okkur inn á gestalista. Benga var alveg brjálaður og í þessu sturlaða kerfi sem var inni á staðnum. Hann spilaði eingöngu lög af dubplate og mjög mikið af eigin efni. Alveg hreint magnað kvöld.

Kita-Senju

Búinn að vera að taka myndir alveg á fullu síðan ég kom. Held að talan sé komin upp í næstum þúsund myndir. Var búinn að spá í því mikið að fá mér filmuvél meðan ég væri hérna úti en svo í gær var ég svo heppinn að finna mér Polaroid Spectra myndavél á skít og kanil. Fór strax og keypti filmu með tíu myndum en það kostaði mig heldur meira, eða sirka 1.700 krónur íslenskar. Ekki jafn rosalega dýrt og heima á Íslandi en mætti þó alveg vera ódýrara. Ætla svo að sjá hvort ég geti ekki fundið einhvern svaka díl ef ég kaupi 100 myndir eða meira og vera meira duglegur að taka polaroid myndir jafnhliða digital dótinu.

Brjólluhaldarar

Er búinn að hanga heima í allan dag að reyna að ná mér af kvefi. Held að þetta hafi verið líkaminn að segja mér að taka því aðeins rólega því að ég hef eiginlega verið á stöðugi vappi síðan ég lenti hérna í byrjun mánaðarins. Slappa af í dag en fer aftur í skólann á morgun.

Eins og ég lofaði, hér er nýtt japanskt lag á mp3-sniði. Þetta er lag með hljómsveitinni J.A.M. sem samanstendur af píanistanum, bassaleikaranum og trommaranum úr Soil & PIMP Sessions en þeir leika saman fínan djass, dálítið í anda Soil & PIMP. Náið í lagið með því að smella á MP3 Vikunnar hnappinn í slánni hægra megin.

8 comments


21.04.2008 >> Shibuya myndir

Vegavinna

Shibuya..

Shibuya

..og..

Frá Hachiko

..meira Shibuya.

0 comments


14.04.2008 >> Meira blogg

Ikebukuro

Leitin að íbúð heldur áfram. Ég er hægt og rólega að þræða þau hverfi sem eru mitt á milli skólans og miðbæjarins og athuga verðin þar. Svo virðist vera að ég þurfi að eyða um 90.000 jenum á mánuði (65.000 kr?) til að fá ágætis íbúð. Ágætis íbúð í þessu tilfelli er sirka 30 fermetra pleis með lítilli stofu með eldhúsi og einu svefnherbergi. Kíkji á tvo staði í dag, vonandi rekst ég á eitthvað sniðugt.

Shinjuku

Hitti á hann Shibano í seinustu viku. Hann hitti ég fyrst á Airwaves í fyrra en hann kom á klakann til að taka myndir af Íslandi og músíkfólkinu á hátíðinni. Afraksturinn úr ferðinni ætlar hann svo að nota til að halda sýningu núna í sumar. Í opnuninni vill hann svo að ég DJ-i íslenska músík en því kíkti ég með honum að skoða mögulega staði til að halda sýninguna. Fundum einn mjög flottan stað, á efstu hæð í 10 hæða húsi og undir einhvers konar gler- og stálkeilu. Mjög kúl, vona að staðurinn verði laus og að þetta gangi allt saman eftir.

Wedge

Kíkti með Maríu á Wedge klúbbinn í Shimokitazawa á laugardaginn til að sjá vin minn Kento spila. Við komum okkur til Shimokitazawa og röltum svo um heillengi að reyna að finna staðinn. Klukkan var að nálgast miðnætti en mikið af búðum voru ennþá opnar. Kíktum í diskabúð og ég keypti mér tvo diska, pönk-safnplötuna Do Thank Anal og "bitpop"-safndiskinn Famicompi. Komumst loks á klúbbinn þar sem við vorum við drykkju og dans fram undir morgun. Eftir klúbbinn var það svo karaoke þar til að lestirnar byrjuðu að ganga. Eðalkvöld.

Plaggat í Akihabara

Ætla að klára kaffibollann og svo koma mér af stað. Viðkomustaðir dagsins eru Mejiro og Ebisu. Báðir eru við aðal-lestaræð Tokyo og vonandi eru ódýrar íbúðir að finna. Nýtt japanskt mp3 og fleiri myndir á leiðinni.

3 comments


14.04.2008 >> Myndir

Bic Camera

Bic Camera, Shinjuku

Akihabara

Þak í Akihabara

Jumbo

Spilasalur í Shinjuku

Shin-Okubo

Shin-Okubo lestarstöðin

Otsuka

Hótel og bílastæði í Otsuka

0 comments


10.04.2008 >> Dagbók #2

Ride

Var að spila á laugardaginn seinasta á stað sem heitir Secobar. Hitti á Maríu og vinkonu hennar og við fórum saman á staðinn eftir smá mat og drykk. Um leið og ég kom var ekki búið að opna en samt eitthvað panik því að það vantaði DJinn sem átti að byrja á undan mér. Byrjaði því strax að spila og spilaði nokkuð lengur en ég átti að gera en það gekk vel. Heyrði í gaurnum sem að skipuleggur þessi kvöld eftir á og mér heyrðist á honum að hann vildi að ég spilaði meira með krúinu sínu í framtíðinni sem eru bara góðar fréttir.

Shibuya

Sunnudagurinn var rólegur, fór seint á fætur og fór eiginlega beinustu leið heim til kennarans í matarboð sem hann hélt fyrir okkur nemendurna. Fínasti matur og spjall fram á kvöld. Þegar ég sá fram á að enginn væri nógu ókurteis til að vera sá fyrsti til að fara afsakaði ég mig og sagðist þurfa að fara eftir að hafa lesið tölvupóst í símanum sem kom heimför minni ekkert við. Þetta er eitt af þessum japönsku menningarlexíum sem maður lærir, aldrei aldrei fara of snemma heim þegar kollegar hittast. Ástæðan er víst sú að ef maður fer of snemma heim munu hinir baktala um mann, eins og gerist eflaust stöðugt fyrir alla Japani.

Shibuya aftur

Ég elska að vafra bara um borgina eins og flækingur. Fór á mánudaginn og þræddi Yoyogi, Harajuku og Shibuya. Kíkti í slatta af búðum, tók myndir, drakk kaffi og slappaði af. Kíkti í Bathing Ape og það var alveg glatað. Merkilegt hvað þetta merki er orðið útþynnt og óspennandi. Ekki það að ég hafi verið mikill aðdáandi til að byrja með. Kíkti líka í OriginalFake en þar var annað uppi á teningnum, mikið af fínu dóti þar. Annars var þetta bara góður dagur sem endaði í vídjóglápi heima.

Nakano

Þetta er frá Shibuya.

Soil tónleikar

Soil & "PIMP" Sessions spila á mánudagskvöldinu. Ég er ekki frá því að þetta hafa verið einir bestu tónleikar sem ég hef séð með þeim. Þeir tóku bara gömul lög framan af en tvö ný lög eftir uppklappið. Þar á meðal var lagið Storm sem er fyrsti singúllinn af nýju plötunni. Rosalega gott nýja efnið, skal reyna að pósta nýja singúl-laginu upp þegar það er komið út en það ætti að vera ein eða tvær vikur í það. Platan kemur svo út í næsta mánuði.

Boobies

Ef að einhver af ykkur dömunum er í eitthvað vondum málum í júllu-deildinni get ég keypt pakka eða tvo af ofangreindum vörum og sent. Fyndið að það var næstum heill veggur af svona vörum í þessu tiltekna apóteki. Hversu mikið vandamál er þetta eiginlega? Ég veit ekki.

5 comments


05.04.2008 >> Kominn til Japan

TAKK!

Fyrst af öllu vill ég byrja á því að þakka öllum þeim sem komu í kveðjupartíið og þeim sem komu við og kvöddu mig fyrir ferðina. Partíið var mjög skemmtilegt og það var túrbo-gott að hitta alla og verða blelluð í sameiningu. "All-in-all" geðveikt gott kvöld.

Ferðalagið

Ferðalagið tók 24 tíma í allt. Það er frá því að ég hoppaði upp í rútuna á BSÍ og þar til ég labbaði út um "Arrivals" hliðið. Ef við tökum svona "frá hurð til hurðar" pælinguna voru þetta 29 tímar. Flugin voru ágæt, gat sofið í klukkutíma á leiðinni til London og í nokkra tíma á leiðinni til Japan.

Japan

Fyrsta sem ég gerði þegar ég kom til Tokyo var að fara í klippingu. Hljómar kannski steikt en ég þurfti að kill-a nokkra klukkutíma þar til að Saho var búinn að vinna. Hún hýsir mig nefnilega fyrstu vikurnar. Í fluginu mundi ég eftir ódýrri hárgreiðslustofu stutt frá því þar sem ég bjó svo að ég skellti mér. Strax eftir það fór ég beint og fékk mér ramen núðlur í Ramen Senmonten, einnig í gamla hverfinu. Delicioso.

Lest

Svefninn var náttúrulega í algjörum döðlum fyrstu nóttina þannig að ég svaf ekki nema 6-7 tíma en þrátt fyrir það vaknaði ég geðveikt hress 7 um morguninn. Ég ætla ekki mikið að fara út í smáatriði en ég held ég hafi náð að gera næstum allt sem ég þurfti að gera á þessum degi. Fór snemma af stað og keypti tannbursta, raksápu, sokka, nærbuxur og allt litla dótið sem mig vantaði. Svo skráði ég mig hjá lókalinu og fékk tryggingakort. Keypti síma, fór í nudd, you name it. Fór snemma að sofa og vaknaði eiturferskur daginn eftir.

Sakura

Kíkti í skólann í gær og sá kampusinn. Verð að segja að þetta er geðveikt fínt pleis. Held að ég eigi eftir að spjara mig ágætlega í skólanum. Eftir það kíkti ég til Akihabara sem er ofvaxna raftækjahverfið hér í borg. Keypti alveg blellað lítið minniskort fyrir símann og Casio úr á smápening. Eftir það var það Shibuya þar sem ég kíkti á J.A.M. tónleika í HMV búðinni. Um kvöldið var það svo létt drykkja á lókal ölkelduhúsi og fínerí bara.

New-half pub

Hérna er ein svipmynd af gærkvöldinu. New-half er víst japanska orðið yfir klæð- eða kynskiptinga, man ekki hvort. Fór því miður ekki inn en á eftir að gera það á einhverjum tímapunkti vonandi.

Ætla að brydda upp á nýjung og senda fólki póstkort sem að það vilja. Fyrst að það er svo slullu-ódýrt og auðvelt að framkalla myndir hérna ætla ég að sendi fólki póstkort í formi ljósmyndar með heimilisfangi aftan á. Þessi hugmynd er komin frá Jóa en hann gerði þetta á síðunni sinni. Nafn og heimilisfang í komment ef þú vilt fá póstkort. Meiri fréttir og myndir á leiðinni.

17 comments


28.03.2008 >> Kveðjupartí á laugardag!

Komdu

Kveðjupartí fyrir Japansförina með öllu tilheyrandi er núna á laugardaginn 29. mars á Barnum. Þætti mjög gaman að sjá sem flesta þannig að (ef ég þekki þig) droppaðu við á Barnum einhvern tímann á laugardagskvöldið (endilega fyrir TZMP tónleikana klukkan 23:00). Hlakka til að sjá ykkur öll og verða blellaður.

4 comments


21.03.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar #2

Hin alvöru Biblía 21. aldar2. kafli

1
Þannig varð himininn og jörðin og allt það dæmi til.
2
Guð var búinn transa þetta allt á degi sjö, betur þekktur sem flöskudagur. Hann var drullu þreyttur, og mjög svangur, út af þessu massíva batteríi sem var komið af stað, þannig hann ákvað að lúlla það sem eftir var dagsins.
3
Og Guð blessaði dag sjö sem dag helgaðan sófanum og afslappelsinu sem honum fylgir, því hann var svo rosalega þreyttur.
4
Þetta er rappið um hvaðan heimurinn kom.
5
Þegar töffarinn Guð púslaði saman jörðinni og himninum, voru engin blóm á jörðinni, því að töffarinn Guð var ekki ennþá búinn að úða pleisið með vaxtardjúsnum sem kallast vatn. Plús, það voru engir menn til þess að rækta þau upp,
6
en þoka pusaðist upp úr jörðinni, og hún bleytti allt pleisið.
7
Þá tók Guð upp leir og lék sér aðeins með hann þar til að hann var kominn með svona kall og hann blés töfralofti í nefið á honum, sem var svona sál inní kallinum.
8
Guð var ekki hættur, hann hikaði ekki við að smella niður frekar töff garði í Eden sem var lengst í austri, og eitthvað, og setti þar kallinn, sem hann hafði föndrað.
9
Og grallarinn Guð lét vaxa á jörðinni alls konar tré, sem voru með heví ferska ávexti og girnileg almennt. Svo plantaði hann síspriklandi líftréi í miðjunni á þessu öllu og svona tré sem skildi muninn á töff og glötuðu dóti.
10
Vökvafljót brunaði frá garðinum góða til að vökva svæðið, og þaðan splittaðist það og varð að fjórum sprænum.
11
Fyrsta sprænan kallaðist Píson; hún rennur um Havíla pleisið, þar sem gullið fæst, bling!
12
Og gullið þar er svo gott. Þar fást bedolakharpeis og sjóamsteinar og kalababb og teporadeisí og þannig lagað.
13
Önnur sprænan heitir Gíhon. Hún sprautast um Kúsland.
14
Þriðja sprænan heitir Kíddekel, maður. Hún sprautast vestan Assýríu. Fjórða sprænan er Efrat.
15
Þá pikkaði Guð upp manninn og skutlaði honum til Eden í hvelli.
16
Og Drottinn Guð bauð manninum út og sagði: ,,Fáðu þér eins og þú VILT af öllum þessum trjám,
17
en af töff/glatað trénu mátt þú alls ekki éta, því að ef þú gerir það þá drep ég þig.``
18
Guð hélt áfram: ,,Það er ekki nógu töff ef þú ætlar bara að vera einn og einmana og eitthvað. Ég verð að búa til handa þér einhverja vini.``
19
Þrátt fyrir að vera næstum viss um að hann væri þegar búinn að því, þá bjó Guð til allar brjáluðu verurnar og alla blakanda fuglana og leyfði gaurnum að gefa þeim nöfn. Hann mátti nefna þau hvað sem hann vildi, bókstaflega hvað sem er. Geðveikt!
20
Og gaurinn gaf öllum rollunum nafn og fuglum loftsins og öllum brjáluðu verunum. En jafnvel með öll þessu klikkuðu dýr í kringum sig var hann ekki að tengja við neitt af þeim. Það var enginn vinur í hópnum.
21
Þá svæfði Guð manninn. Þegar hann var alveg viss um að hann væri sofnaður, tók hann eitt af rifbeinunum út og lappaði upp á hann aftur.
22
Og Guð mótaði litla beinagellu úr rifinu, sem hann hafði tekið úr gaurnum, og skutlaði henni við hliðina á honum.
23
Þá sagði gaurinn: ,,Hey, þetta dæmi hérna kom úr mér. Ég ætla að kalla hana karlynju, eða gellu, af því að mér finnst það passa ágætlega.``
24
Þetta er kannski óskylt, en þess vegna beilar maður á mömmu og pabba og flytur inn til kærustunnar, svo að þau verði saman aftur eða eitthvað.
25
Og þau voru bæði helnakin, gaurinn og gellan, og skömmuðust sín ekki neitt fyrir neitt.

2 comments


20.03.2008 >> MPX

MP3 Vikunnar

Nýja lag vikunnar er í þetta skiptið frá þessum hressu Finnum sem að taka hér ótrúlega gott kover af Winnie The Pooh þemalaginu. Þetta kom út í Japan nýlega á safnskífu af Disney lögum sem voru sett í djass-búning af ýmsum "ný-djössurum". Njótið vel.

1 comments


17.03.2008 >> Red Bull Music Academy

RBMA 2008

Var að sjá að núna er byrjað að taka á móti umsóknum fyrir Red Bull Music Academy sem verður í þetta skiptið haldið í Barcelona. RBMA er árlegt tveggja vikna námskeið í því að gera músík, kennt af mega-góðum tónlistarmönnum og er algjörlega frítt. Meira að segja flugið til og frá staðnum er borgað undir þig. Eina sem þú þarft að gera er að fylla út langa umsókn og senda með CD-R með músík. Ég sótti um þetta í fyrra (komst ekki inn) en ég mæli hiklaust með því að öll þið sem eruð að gera músík sækji um.

Bara það að setja svona umsóknarpakka saman er mjög gott "boost". Bæði kemur þetta manni í gang með að klára gömul lög og gera eitthvað nýtt en líka þá neyðir þetta mann til að skoða katalóginn sinn af músík og fókusa sig dáldið. Svo væri það líka alveg cyber að komast inn og fara frítt til Spánar í tvær vikur.

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ HÉR!

0 comments


13.03.2008 >> Hin ALVÖRU Biblía 21. aldar

Hin alvöru Biblía 21. aldar1. kafli

1
Gaur, í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2
Jörðin var þá alveg glötuð, og það var rosalega dimmt útum allt. Andi Guðs var að vinna í málinu.
3
Guð sagði: ,,Lýsum upp þetta pleis!`` Og það varð ljós.
4
Guð sá að ljósið var töff, og það var Guð með á tandurhreinu.
5
Guð kallaði ljósið "dag", en þegar það var alveg dimmt sagði hann "nótt". Það varð kvöld og það varð morgunn, fyrsti dagurinn maður!
6
Guð sagði: ,,Verði festing milli vatnanna, og hún greini vötn frá vötnum, skilurðu.``
7
Þá festi Guð dæmið og gerði vötnin, sem voru undir festingunni, frá þeim vötnum, sem voru yfir henni sem voru ský. Og það varð svo geðveikt!
8
Guð kallaði festinguna "himin". Það varð kvöld og svo morgunn. Svo bara dagur númer tvö.
9
Guð sagði: ,,Þið þarna, vatn, breakdansið ykkur saman svo að þurrlendið sjáist.`` Og það varð svo töff.
10
Guð kallaði þurrlendið "jörð", en vatnsklessurnar kallaði hann "sjór". Og Guð var að fíla þetta.
11
Guð sagði: ,,Væri það ekki dáldið töff ef að græn grös, sáðjurtir og aldintré myndu poppa upp úr jörðinni? Sem hvert myndi gefa frá sér ávexti og fræ og eitthvað?`` Jújú, og það varð svo.
12
Jörðin byrjaði bókstaflega að sprauta grænum grösum, jurtum, aldintrjám upp og út um allt allsstaðar. Og Guð sá, ójá, að það var eitthvað töff við þetta.
13
Það kom kvöld og það varð morgunn, svo kom þriðji dagurinn. Heilaga þrenningin maður!
14
Guð rappaði: ,,Verði brjálaður bálköstur á himninum, og líka aðeins minni gaur og þau tákni tíma og þannig.
15
Og þau eru ljós til að lýsa pleisið.`` Og það varð svo. Geðveikt.
16
Guð bjó til tvö risaljósin: stóra ljósið til að lýsa meira og þetta aðeins minna til að vera bara þarna á nóttunni, með smá ljósi, og svo stjörnurnar líka.
17
Guð skaut þessu öllu upp í himininn, dansaði smá hip-hop
18
og bálkestirnir vissu hvað þeir áttu að gera. Og Guð var illa sáttur.
19
Eftir smá kvöld og smá morgunn kom dagur fjögur.
20
Guð sagði: ,,Það er eitthvað líflaust í þessu vatni þarna. Hvernig væri að fá smá sprikl? Svo ekki sé talað um eitthvað blakandi í himininn, gaur!``
21
Þá skapaði Guð öll sjávarspriklandi dýrin og passaði að þau drukknuðu ekki. Svo kastaði hann saman öllum þessu fljúgandi elskum. Og Guð tók eftir því að þetta var orðið bara helvíti geggjað hjá sér.
22
Og Guð blessaði allt í bak og fyrir og rappaði til fuglanna og fiskanna: ,,Enginn tími til að slóra, tími til að upplifa kynlífsóra.``
23
Dagur fimm.
24
Guð sagði: ,,Jörðin er nú meiri dallurinn. Það vantar klárlega einhverja landskríðendur. Kindur, krókódíla og klikkuð dýr. Þannig dót, skilurðu.`` Og það varð nákvæmlega þannig.
25
Guð gerði klikkuðu dýrin, kindurnar og alls kyns krókódíla á jörðina eins og honum einum er lagið. Og Guð sá allar þessar brjáluðu verur og fannst þetta gott hjá sér.
26
Guð sagði: ,,Ég held að það sé kominn tími á að ég geri alvöru gaur, svona eins og mig, líkum mér, þú veist. Hann á ekki eftir að taka við neinum skít frá neinum af þessum brjáluðu verum. Toppurinn í fæðukeðjunni, maður.``
27
Og Guð gerði manninn eins og hann er, hann skapaði hann eftir sjálfum sér, hann skapaði gaur og gellu.
28
Guð gaf þeim æðislegar blessanir, sagði við þau: ,,Hey, verið töff. Eignist börn og farið á staði, ferðist þið aðeins. Ekki gleyma, þið verðið að stjórna þessum fiskum og fuglum og öllum þessu brjáluðu dýrum sem eru að hanga á jörðinni.``
29
Og Guð hélt áfram: ,,Taktu eftir þessu, hérna eru alls konar fræ og alls konar tré og svoleiðis. Þú veist, sem að gefa af sér svona mat. Þið getið borðað það.
30
Öll hin dýrin, allir fuglar og skriðkvikindin á jörðinni mega eiga grösin og jurtirnar til að borða.`` Og það varð svo.
31
Guð rifjaði upp allt sem hann hafði brallað undanfarið, og bara vá, það var frekar töff. Það varð kvöld og síðan kom morgunn, og þá var kominn dagur númer sex.

15 comments


08.03.2008 >> Amy Casa de Vino


Sorrí Naldó og aðrir sem hafa óbeit á embedduðum YouTube klippum, þetta er bara of fyndið.

3 comments


08.03.2008 >> Party Zone í kvöld!

Er að spila í Party Zone á Rás 2 í kvöld, laugardaginn 8. mars. Verð með syrpu í fyrri helmingi þáttarins og byrja stuttlega uppúr 20:00. Broken-beat og kannski smá "nu-jazz" í bland. Vinsamlegast leggjið við hlustir ef að þið eruð nálægt viðtæki.

0 comments


07.03.2008 >> BA í drekafræðum



3 comments


02.03.2008 >> Nýtt nýtt nýtt

Ég elska Tokyo

Glöggir gestir síðunnar gætu hafa tekið eftir litlum hnappi sem ég bætti við í slánna hægra megin á síðunni. Þessi hnappur vísar á síðu sem að ég og Halli höfum verið að vinna að sem heitir Ég elska útlönd. Konseptið bakvið síðuna er að mæla með stöðum í borgum sem við höfum persónulega reynslu af, í hans tilfelli New York og í mínu tilfelli Tokyo. Þessi síða er búin að vera í vinnslu í smá tíma en loksins finnst mér vera orðið nóg af efni á henni til að geta kynnt hana fyrir fólki. Mest megnis eru þetta skemmti- og veitingastaðir sem eru kynntir en fjölbreytnin mun aukast til muna þegar ég verð kominn út. Kíkjið á þetta dilly-dally hér!

Lag vikunnar

Nýtt lag vikunnar komið, þetta skiptið frá ansi mögnuðum 21 árs Skota.  Músíkin er instrúmental hip-hop, mjög í ætt við Detroit sándið sem J Dilla gerði frægt. Ég reif þetta úr þessu mixi sem að Harmonic 313, eða Mark Pritchard, gerði fyrir þáttinn hennar Mary Anne Hobbs á BBC. Gaurinn var víst að semja við Warp og er að vinna að breiðskífu sem ég er mjög spenntur fyrir ef að hún verður eitthvað í líkingu við þetta lag. Njótið.

3 comments


25.02.2008 >> Boogie Mixx

Boogie Mixx

Hér er splunkunýtt mix sem ég kláraði um helgina með boogie slögurum. Á leikmannamáli er boogie einskonar diskó 9. áratugsins með áhrifum frá funk, soul og poppmúsík.

Boogie Mixx [86MB] (beint dánlód)

Lagalisti:

01 : Mid Air - Ease Out
02 : D-Train - Keep On
03 : Boeing - Dance On The Beat
04 : Intrigue - I Like It
05 : Dayton - The Sound of Music
06 : Karen Silver - Nobody Else
07 : Rene & Angela - I Love You More
08 : Gayle Adams - Love Fever
09 : Change - Heaven of My Life
10 : Carol Williams - Can't Get Away
11 : Savana - Never Gonna Let You Go
12 : Maxx Traxx - Don't Touch It
13 : Yarbrough & Peoples - Don't Stop The Music

4 comments


16.02.2008 >> Woohoo!

Jei!

Fékk að vita þetta í gær beint frá Menntamálaráðuneyti Japans en það gefur styrkinn. Vitaskuld er ég í skýjunum yfir þessu, líka út af því að ég komst í skólann sem ég bað um en það er ekki sjálfgefið. Ég er semsagt á leiðinni í Mastersnám við Tokyo University of Fine Arts þar sem ég mun að öllum líkindum gera rannsókn á nýjum tónlistarstefnum í Tokyo. Styrkurinn sem ég fæ er til tveggja ára en þar sem ég byrja sem "rannsóknarnemi" áður en ég kemst í Masters-prógrammið mun ég líklega vera úti í 3 ár.

John Alvin

John Alvin var að deyja í síðustu viku. "Hver er það?" heyri ég þig spurja upphátt. Jú, það var einn af langbestu listamönnum jarðar sem sérhæfði sig í kvikmyndalist og bíómyndaplaggötum. Þrátt fyrir að hafa oft séð verk hans hafði ég ekki hugmynd um hver hann var fyrr en ég rakst á frétt um dauða hans 6. febrúar síðastliðinn. Hægt er að skoða mikið af verkunum hans hér. Ertu ekki grínast hversu mörg klassísk bíóplaggöt þessi maður hefur gert? Nei, það held ég ekki. Blade Runner og E.T. væri alveg nóg en hann gerði alveg spassað mikið af plaggötunum og vídjóspóluhulstrunum sem maður þekkir frá barnæsku. Þvílíkur hæfileikamaður. RIP.

Flickr síðan

Var að uppfæra flickr-síðuna með nokkrum völdum nýlegum myndum. Checka-wreck it out.

6 comments


11.02.2008 >> MPIX "Double Whammy"

Ójá

Ég vill í fyrsta skipti bregða frá sjálfskipuðu reglunni að pósta bara tónlist og skella upp gríni. Þetta er frá þessari safnplötu af stand-up. Ég veit lítið sem ekkert um þennan mann nema að hann er ógeðslega fyndinn og tilheyrir þessu tvíeyki af grínistum sem að gera grínlög sem eru misgóð. Ótrúlega góður gæji að gera góða grín-hluti.

Funny

Í fyrsta skipti er það tvöfalt mp3 en ég varð bara að pósta öðru "lagi" af sömu plötu. Ég grét næstum af því að hlusta á þetta og því varð ég að skella þessu með. Enjoyeux.

2 comments


09.02.2008 >> Sigurvegarinn

Björn Ingi, sigurvegari


37 comments


30.01.2008 >> Besti Flash leikur í heimi

Nanaca Crash

NANACA†CRASH!! er besti flash leikur sem hægt er að spila á netinu. Ótrúlega, ótrúlega góður og einfaldur leikur. Varðandi hvernig maður spilar hann þá útskýrir hann sig mjög mikið sjálfur. Virkar svipað og leikurinn þar sem maður var að þruma hafnarboltakylfu í mörgæsir nema með nokkrum skemmtilegum viðbótum. Endlaust gott.

Koma svo og póstið hi-score-unum ykkar í kommentin! Mitt er 7110.34m 10870.40m 13689.75m.

SPILA HÉR!

PS. Góð taktík til að ná langt er hér.

PPS. Þetta er orðið að keppni. Sjá í kommentum.

16 comments


25.01.2008 >> MPVIII

Mp3 vikunnar

Þessa vikuna er það lagið No More Tears með hljómsveitinni Angel Heart en hún samanstendur af mér og Örnólfi Thorlacius. Þetta er eina lagið sem varð til úr þessu samstarfi en við gerðum þetta 2002 ef ég man rétt. Össi sá um aðalvókalinn, ég um bakraddir en textann og undirspilið möndluðum við í sameiningu. Get ekki uppfært linkinn á MP3 Vikunnar hnappinn þannig að smellið á myndina hér að ofan til að ná í lagið. Njótið vel og lengi lengi.

2 comments


22.01.2008 >> Ritdómur: The Truth About Diamonds

Ritdómur #1

Núna, 3 mánuðum, 2 vikum og tveim dögum eftir að ég fékk þessa bók í afmælisgjöf hef ég loksins lokið við hana. Það tók tvær flugferðir og ansi mikla þolinmæði. Mikla, mikla þolinmæði. Að lesa þessa bók er mjög svipað því að sitja í strætó í marga klukkutíma við hliðina á óþolandi fólki sem getur ekki hætt að tala.

Efni: Í stuttu máli fjallar bókin um vinkonu Nicole Richie, hana Chloe (sem er Nicole sjálf), og raunir hennar þegar hún skýst upp á stjörnuhimininn og finnur ástina. Nicole sjálf er sögumaðurinn en hún segir frá hvernig Chloe dregur sig upp úr eiturlyfjaneyslu og verður fræg fyrir auglýsingaherferð sem hún tekur þátt í með vinkonu sinni Simone (Paris Hilton). Þessi Simone reynist svo vera algjör naðra og Chloe lendir í einhverri flækju með fyrirtækið sem framleiddi auglýsingarnar. Þetta endar allt svo með mjög svo skyndilegri "conspiracy" fléttu á 10-undu síðustu síðu bókarinnar og svo með því að hún játar ást sína á DJ Ray, gömlum vin hennar.

Gagnrýni: Það er mjög margt sem gerir þessa bók mjög erfiða lesningu. Allir karakterar bókarinnar eru lítið sem ekkert byggðir upp og eftir allan lesturinn skilja karakterarnir ekkert eftir sig. Það er kannski þess vegna sem að Nicole ákvað að skella inn myndakafla með 15 lit-ljósmyndum af henni inn í miðja bókina en það hjálpar mér bókstaflega ekki neitt. Verstu kaflarnir eru svo þegar að hún Nicole reynir að láta vorkenna sér fyrir þessa stöðugu athygli sem hún fær. Skást er þegar hún gerir manni það mjög ljóst að hún er varla skrifandi.

Orðalagið í bókinni er mestpart afar einfalt og oft barnalegt en samt sem áður hikar hún ekki við að slá aðeins um sig með "flóknum orðum". Til dæmis með því að nota orðasambandið persona non grata óþarflega oft. Svo er þessi setning hérna gott dæmi um rispurnar sem hún tekur með nokkurra blaðsíðna millibili.

Ritdómur #1

Fyrir utan að vera svakalega óþjál setning ætti hún ekki að vera að nota orðin "spurned" og "balustrade" almennt.

En aðeins um það góða, blessunarlega er bókin með nánast tvöföldu línubili og bara rétt rúmar 200 blaðsíður svo að það tekur bara næstum hálft ár að klára hana.

Niðurstaða: Án efa ein versta bók sem ég hef lesið. Því miður er hún ekki nógu slæm til þess að vera fyndin, sem hún er ekki nema örsjaldan. Hún Nicole býr jafnframt yfir svo takmörkuðu ímyndunarafli að það er mjög erfitt að klóra sig í gegnum þetta verk. Best að ljúka þessu með lærdómnum sem að rithöfundurinn kemst að í lok bókar.

Tilvitnun #2

Touché, ya dirty bitch.. touché.

Dómur: Þrjár vofur.

9 comments


16.01.2008 >> MPVII

Mp3 vikunnar

Núna aftur er annað lag sem ég rakst á við að taka upp vínylsafnið. Þetta er æðislegt soul-jazz lag, upprunalega samið af Clifton Davis en gert frægt af The Jackson 5 sem áttu smell með því sama ár og útgáfan hans Rahsaan kom út, eða 1971. Jackson 5 útgáfuna má sjá á YouTube hér en annars er það bara sama og venjulega, smella á grafíkina að ofan eða á hnappinn hægra megin til að fá lag vikunnar.

0 comments


15.01.2008 >> Pussydoodles



3 comments


08.01.2008 >> MPVI + Gleðilegt nýtt ár

Dánlód með því að klikka hér

Gleðilegt nýtt ár, öllsömul. Með nýju ári koma nýjar vonir og gömul elektrólög. Þetta lag með þessari stórgóðu elektrósveit rakst ég á í plötusafninu fyrr í kvöld og byrjaði að koma henni á stafrænt form. Við að hlusta á þessa plötu aftur (sjá nánar um plötuna hér) mundi ég hversu ótrúlega mörg góð lög eru á henni. Ekki bara Sterilization sem er líka dúndurgóð elektró-klassík heldur svo mörg önnur. Svo er allar þessar klámtilvísanir mjög hressandi. Eðall.

Flickr

Vill svo benda á að ég var að skella upp nokkrum myndum á flickr-síðuna.

3 comments


07.01.2008 >> Fokking snækó



0 comments


drippy

____LINKAR___

___Músík-ég á Myspace

___Mynda-ég á Flickr
___TZMP á MySpace
___Japansbloggið mitt
___Robert Zuckakis
___Arnaldur
___Sveinbjörn.org
___Sveinbjörn.com
___Jói Fótómaster
___Bob
___Baldur

___Halli
___Diðrik
___Jói.is
___Ozy
___Íris
___Kalli
___Loftur
___Halldór Elís
___Ari Eldjárn
___Breakbeat.is
___samurai.fm
___Soul Sides
___B-Town Hit Parade
___Space Shower DAX
___SoulStrut
___Million Dollar Disco
___Beyond Category
___Boing Boing
___Akihabara News
___TV in Japan
___Blinkerfluid
___videos.antville.org
___Shin Tanaka
___Spine Magazine


____SPILERÍ___

___Ekkert á döfinni...

____MÚSÍK___

___Sunfire
___Sunfire
___OOIOO
___COCOCOOOIOO

____BÍÓ___

___Taste of Tea (2004)
___Naisu no mori: TFC (2005)
___Paprika (2006)


eldri

www.flickr.com
This is a Flickr badge showing public photos from arnikristjansson. Make your own badge here.

Lag vikunnar

Ég elska Tokyo

LeDaNeux


city

__arnikristjansson.com (c) 2006 - 2008__