30.06.2009 >> Internetkeppnin 2009

10 comments
21.06.2009 >> Sunnudagur
Hér er eitt sunnudagslag frá Sister Sledge. Hélt mig lengi vel frá þessari plötu vegna ostaveislunnar "We Are Family" en svo er þetta hörkufína lag að finna á plötunni.
0 comments
03.06.2009 >> Arabikidan

Kominn tími á smá uppfærslu með myndum og sögum.

Fór á fyrirlestur með Kode9 sem að kunningi minn úr kvikmyndadeildinni í skólanum stóð fyrir. Hann var að fjalla um nýju bókina sína Sonic Warfare sem kemur út síðar á árinu. Í grunnatriðum fjallar hún um hvernig hljóð getur verið notað sem vopn eða sem stjórntæki og einnig fjallar hann um tónlist sem vírus sem fjölgar sér. Fyrirlesturinn var mjög athyglisverður en eftir hann fór ég með skipuleggjundunum og Kode9 þar sem var spjallað. Ég náði að spjalla slatta við hann og vonandi fæ ég tækifæri einhvern tímann til að spjalla við hann í tengslum við rannsóknina.

Einn af mest spennandi kúrsunum sem ég er að taka núna er í hljóðupptökutækni sem ég er í alltaf á mánudögum. Þetta er voða "basic" þar sem kennarinn fer voða hægt í hlutina en hann leyfir okkur frekar að prufa okkur áfram og mynda okkar eigin skoðanir. Stúdíóið er alveg mongó-flott, sést varla á myndinni en upptökurýmið er svo stórt að það er hægt að taka upp 100 manna hljómsveit. Svo er tugir tegunda mæka sem við getum notað en sumir kosta hundruði þúsunda. Í lok annarinnar á ég svo að geta tekið próf til að geta notað stúdíóið einn en eins og er ef ég vill bóka stúdíóið verð ég að hafa einhvern með mér sem hefur tekið prófið.

Í Ikebukuro fyrir nokkrum dögum.

Þessi dama var sofandi í hádegishléinu sínu í Shinagawa í gær. Stóðst ekki mátið að taka af henni mynd og setja smá loðnu í veskið hennar.

Er ennþá að skipuleggja heimferðina en allt lítur út fyrir að ég komi heim í byrjun ágúst og fari aftur undir lok mánaðarins. Þarf nefnilega að kvitta fyrir styrknum sem ég er að fá alltaf í byrjun hvers mánaðar og því get ég ekki verið lengur. Stefni á að kaupa miðann í lok mánaðarins þegar ég á nægan pening fyrir honum og ég læt vita um leið og dagsetningarnar eru negldar. Bonne année!
3 comments
13.05.2009 >> Gærdagurinn

Í gær fór ég með skólanum í ferð til Niigata-héraðs í norður Japan þar sem Echigo-Tsumari Art Triennale verður haldið í sumar í fjórða sinn. Skólinn fær lánaða auða byggingu í héraðinu og á að setja upp dagskrá og því fórum við að skoða aðstöðuna og að ræða hvernig dagskráin ætti að vera.

Þetta var fyrsta byggingin sem við skoðuðum, grunnskóli mitt í sveitinni í Niigata.

Við bjuggumst öll við að byggingin yrði í meiri niðurníslu því að skólinn hefur ekki verið starfræktur í nokkur misseri. Svo reyndist ekki vera, skólastofurnar litu allar heillegar út og það var alls konar dót sem hafði verið skilið eftir, eins og hljóðfæri, sjónvörp og innanhúss kallkerfi og margt annað sem að hægt væri að nota í að setja upp listasýningu eða einhvers konar viðburð.

Eftir að hafa skoðað skólann lá leiðin upp götuna að samkomuhúsi sem að var einnig í stöðunni að við mættum nota. Á leiðinni rakst ég á þessa strætóstoppistöð. Ef maður missir af strætóinum á morgnanna hér er biðin eftur næsta einungis 7 klukkutímar. Ansi stíft.

Þetta er hitt húsið sem að kom til greina að nota. Eitt stórt rými inni í húsinu og svo nokkur herbergi. Mér heyrðist á öllum að þetta væri málið frekar en þriggja hæða skólabygging.

Við hliðina á skálanum var einbýlishús með sér bílskúr. Bílskúrinn stóð opinn upp á gátt og við vorum nokkur sem að stóðumst ekki mátið og tókum myndir.

Svona lítur umhverfið út þarna og er ansi magnað. Minnti mig mikið á hina stórgóðu bíómynd Bridges of Madison County. Eða bara ekki neitt.

Kíktum aftur í skólann og skoðuðum að lokum þakið. Við fengum það staðfest að við mættum nota það en fyrsta sem ég hugsaði var að draga með græjur og spila músík þar. Halda partí í lok fyrsta dagsins. Vonandi að hugmyndin fái hljómgrunn og að eini íbúinn í hverfinu með dádýrið í bílskúrnum verði ekki með eitthvað múður.

Svo á leiðinni heim sá ég þennan gæja á lestarstöðinni í Ikebukuro. Hann var steinsofandi og hreyfði sig ekki, að minnsta kosti í um mínútu eða tímann sem að tók mig að finna myndavélina og smella af.
2 comments
__ELDRI FÆRSLUR__
|